fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
433Sport

30 handteknir eftir leik Fram og Víkings – Ráðist að lögreglunni og dómaranum

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 30. október 2018 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tímavélin:

Upp úr sauð á Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu vorið 1940 í leik Víkings og Fram. Eftir atvik á vellinum veittust áhorfendur að dómara leiksins og þurfti lögreglan að handtaka þrjátíu pilta.

„Uss, það var bara box,“ sagði ungur piltur sem kom af leik Víkings og Fram á Íþróttavellinum. Leikurinn var rólegur í fyrri hálfleik en í þeim seinni færðist harka í hann. Var allt að verða vitlaust á vellinum og þurfti dómarinn, Gunnar Axelsson, margsinnis að hafa afskipti af leikmönnum.

Um tólf hundruð áhorfendur voru á leiknum. Undir lokin hljóp einn áhorfandi inn á völlinn og ætlaði að slá Gunnar en þá kom bakvörður Víkings, Gunnar Hannesson, honum til varnar. Endaði það með því að bakvörðurinn fékk bylmingshögg.

Lögreglan kom aðvífandi og skarst í leikinn og urðu þá margir áhorfendur reiðir. Gerði hópur pilta og fullorðinna manna aðsúg að lögreglunni og dómaranum. Stympingar milli lögreglu og óeirðarseggjanna stóðu lengi yfir inni á Íþróttavellinum og bárust slagsmálin út á Suðurgötuna. Að lokum fór svo að þrjátíu óeirðaseggir voru handteknir, yfirheyrðir og loks sleppt.

Umfjöllun blaðanna var á eina leið; að árásin hafi verið tilhæfulaus og óeirðaseggirnir ættu að fá bann og sektir. Meira að segja blaðamenn Morgunblaðsins og Þjóðviljans voru sammála um það. Úrslit leiksins voru 1-0 Víkingi í vil.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Meintar njósnir til rannsóknar á Englandi

Meintar njósnir til rannsóknar á Englandi
433Sport
Í gær

Mourinho líklega að taka við – Setur þessi skilyrði

Mourinho líklega að taka við – Setur þessi skilyrði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Wayne Rooney botnar ekkert í ákvörðun Tuchel er varðar Trent

Wayne Rooney botnar ekkert í ákvörðun Tuchel er varðar Trent
433Sport
Fyrir 2 dögum

Bauð öllum leikmönnum í afmælið sitt í gær en mætti svo ekki sjálfur

Bauð öllum leikmönnum í afmælið sitt í gær en mætti svo ekki sjálfur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Klæðaburður Georginu vakti gríðarlega athygli í New York – Sjáðu myndirnar

Klæðaburður Georginu vakti gríðarlega athygli í New York – Sjáðu myndirnar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arsenal og Liverpool á eftir dönsku ungstirni

Arsenal og Liverpool á eftir dönsku ungstirni