Pep Guardiola, stjóri Manchester City, hefur þakkað kollega sínum hjá Liverpool, Jurgen Klopp.
Klopp sagði á blaðamannafundi í dag að hans menn væru ekki sigurstranglegastir í deildinni í vetur heldur núverandi meistararnir í City.
,,Takk fyrir Jurgen. Ég hef lifað með þessu í níu ár og það er ekkert vandamál,“ sagði Guardiola.
,,Í níu ár fyrir utan fyrsta árið mitt þegar ég byrjaði hjá Barcelona og fólk var ekki hrifið af mér sem stjóra.“
,,Síðan þá unnum við þrennuna á hverju ári og vorum alltaf sigurstranglegastir.“
,,Svo við erum sigurstranglegastir. Þakka þér fyrir, Jurgen, þú ert svo vingjarnlegur.“