fbpx
Mánudagur 09.júní 2025
Sport

Jón Jónsson: Hannes hefur þurft að sigrast á mörgum hindrunum – Bjó til fallegt myndband til heiðurs vini sínum

„Til lukku með árangurinn, Hannes“ – Jón og Hannes kynntust í Versló og eru góðir vinir

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 27. júní 2016 15:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mynd: EPA

„Ferill þessa drengs er magnaður því þrátt fyrir að vera kosinn besti markvörður Shell-mótsins árið 1994 var leið hans á toppinn ansi hlykkjótt og hefur Hannes Halldorsson þurft að sigrast á mörgum hindrunum á sinni vegferð,“ segir tónlistarmaðurinn Jón Jónsson sem hefur sett saman sannkallað fallegt myndband til heiðurs vini sínum, markverðinum Hannesi Þór Halldórssyni.

„Ég, rétt eins og öll íslenska þjóðin, er að rifna úr stolti yfir gengi íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu. Ég er svo heppinn að þekkja nokkra í liðinu og veit hversu mikið þeir hafa lagt á sig til að uppskera slíkan árangur. Einn af mínum góðu vinum er Hannes Þór Halldórsson sem vægast sagt hefur slegið í gegn í Frakklandi,“ segir Jón en þeir Hannes kynntust fyrir fjórtán árum þegar þeir stunduðu nám í Verslunarskóla Íslands.

Jón Ragnar setti saman þetta fallega myndband til heiðurs vini sínum, Hannesi Þór Halldórssyni.
Góðir vinir Jón Ragnar setti saman þetta fallega myndband til heiðurs vini sínum, Hannesi Þór Halldórssyni.

Mynd: Facebook-síða Jóns

Jón segist hafa fylgst með öllum litlu skrefunum sem hann hefur tekið í átt að þeim stað sem hann er í í dag, það er í hópi bestu landsliðsmarkvarða Evrópu. Eins og Jón Ragnar bendir á hefur ferill Hannesar ekki alltaf verið dans á rósum en með dugnaði og vinnusemi hefur Hannesi tekist að uppskera laun erfiðisins.

„Eins og margir vita þá á Hannes einnig glæstan feril sem leikstjóri og í vetur dustaði hann rykið af klippiborðinu og púslaði saman fallegri N1-auglýsingu. Hann plataði mig til að koma laginu mínu, „Gefðu allt sem þú átt“ í nýjan búning og með ómetanlegri aðstoð vina minna, Sölku Sól Eyfeld og Kristjáns Sturlu Bjarnasonar, varð til hljómfögur ballaða. Í framhaldinu höfum við fengið urmul fyrirspurna um lagið í fullri lengd og nú er kominn tími á að svara því kalli. En þar sem lagið kennir okkur að trúa á draumana okkar fannst mér ekkert annað koma til greina en að setja saman myndband Hannesi til heiðurs og vil ég þakka Snora Barón Jónssyni fyrir aðstoðina og auðvitað Allan Sigurðssyni fyrir að klippa það saman.

Til lukku með árangurinn, Hannes, landsliðshetjur og allir Íslendingar. Gefum nú allt sem við eigum og tökum Englendingana!,“ segir Jón en myndbandið má sjá hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Tottenham reynir að skáka United – Koma þjálfarans gæti breytt öllu

Tottenham reynir að skáka United – Koma þjálfarans gæti breytt öllu
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Ten Hag vill fá leikmann United

Ten Hag vill fá leikmann United
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Tvöfalt fleiri mættu á kvennalandsleikinn en á leik karlaliðsins

Tvöfalt fleiri mættu á kvennalandsleikinn en á leik karlaliðsins
433Sport
Í gær

Rogers á óskalistanum

Rogers á óskalistanum
433Sport
Í gær

Stjörnurnar sagðar íhuga eigin framtíð eftir brottreksturinn

Stjörnurnar sagðar íhuga eigin framtíð eftir brottreksturinn
433Sport
Í gær

Netflix segir stopp og vill ekki framleiða aðra seríu af raunveruleikaþáttunum – Vöktu heimsathygli er þeir komu út

Netflix segir stopp og vill ekki framleiða aðra seríu af raunveruleikaþáttunum – Vöktu heimsathygli er þeir komu út