fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Pressan

Þessar fæðutegundir auka líkurnar á sjúkdómsleysi fram á áttræðisaldurinn

Pressan
Laugardaginn 25. apríl 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vísindarannsókn varpaði ljósi á hvaða fæðutegundir fólk á að borða meira af, og hvaða fæðutegundir það á að forðast, til að auka líkurnar á að lifa án stórra krónískra sjúkdóma þar til áttræðisaldri er náð.

Vísindamenn rannsökuðu matarvenjur og heilsufarsupplýsingar rúmlega 105.000 manns á aldrinum 39 til 69 ára og náði rannsóknin yfir 30 ára tímabil.

Þeir, sem fylgdu hollum matarvenjum þar sem mikið var af mat úr jurtaríkinu og lítið um ofurunnar matvörur, voru líklegri til að vera heilbrigðir þegar aldurinn færðist yfir og sýndu færri merki um hnignandi heilastarfsemi, hnignandi líkamlegt ástand og hnignandi andlega heilsu.

Átta tiltekin mataræði, sem komu við sögu í rannsókninni, sýndu fram á mikilvægi sex fæðutegunda – Ávaxta, grænmetis, grófs korns, ómettaðrar fitu, hneta og belgjurta. Sumar innihéldu einnig smávegis eða hóflega neyslu á hollum matvörum úr dýraríkinu, til dæmis fisk og ákveðnar mjólkurafurðir.

Frank Hu, yfirmaður næringarfræðideildar Harvard T.H. Chan School of Public Health í Bandaríkjunum, sagði að sögn Expressen að í fyrri rannsóknum hafi matarvenjur og tengsl þeirra við ákveðna sjúkdóma verið rannsakaðar eða hversu lengi fólk lifir. Þessi rannsókn sé mun breiðari og spurt sé hvaða áhrif mataræði hafi á getu fólks til að lifa sjálfstæðu lífi og njóta góðra lífsgæða þar til það verður gamalt?

Rannsóknin leiddi í ljós að um 9.800 manns, eða 9,3% þátttakendanna, urðu gamlir á „hollan“ hátt.

Mikilvægasta mataræðið reyndist vera Alternative Healthy Eating Index (AHEI) en í því eru matvælum og næringarefnum gefin stig eftir getu þeirra til að fyrirbyggja króníska sjúkdóma.

Fólkið, með flestu AHEI-stigin, reyndist 86% líklegra til að vera heilbrigt þegar það varð sjötugt en þeir sem voru með fæst stig.

Í AHEI er mælt með því að lítið sé borðað af rauðu kjöti og unnum kjötvörum, sykruðum drykkjum, salti og fínunnum kornvörum.

Neysla á ofurunnum matvælum reyndist tengd minni líkum á heilbrigðu öldrunarferli og skipti þá engu hvaða mataræði þátttakendurnir fylgdu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“