
Maður í Walton-sýslu í Florida, Christopher Hughes, 43 ára, hefur verið dæmdur í 11 mánaða fangelsi, auk þriggja ára skilorðsbundins fangelsis, fyrir tilraun til að ræna hraðbanka.
True Crime News greinir frá.
Atvikið átti sér stað 16. apríl 2025. Maðurinn stal skurðgröfu og reyndi að nota hana til að nema hraðbankann á brott, en tókst ekki. Sjónarvottur hringdi í lögreglu og er lögreglumenn komu á vettvang flúði Christopher í burtu.
Hann var handtekinn skömmu síðar og sagði þá í yfirheyrslu lögreglu að hann vildi frekar ræna banka en vinna hjá bróður sínum.
Þess má geta að nokkru mánuðum eftir þetta atvik, eða í ágústmánuði 2025, var hraðbanka Íslandsbanka í Mosfellsbæ rænt og var notuð til þess skurðgrafa. Geranda tókst að fjarlægja bankann en ekki opna hann og fannst hraðbankinn stuttu síðar. Í honum voru um 22 milljónir króna.