fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Reiður Trump rauk út úr viðtali – „Thank you darling, have a good time“

Pressan
Sunnudaginn 7. júní 2026 17:08

Donald J. Trump, forseti Bandaríkjanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Bandaríkjaforseti rauk úr úr miðju sjónvarpsviðtali við NBC í þættinum Meet the Press, vegna þess að hann var óánægður með spurningar blaðamannsins Kristen Welker.

Metro greinir frá en meðfylgjandi er myndband af uppákomunni.

Trump og sjónvarpskonuna greindi á  um margt, meðal annars kosningar í Kaliforníu og Íransstríðið. Trump staðhæfði að rangt hefði verið haft við í nýlegum kosningum í Kaliforníu en þegar Welker benti honum á að hann hefði ekki lagt fram nein gögn því til sönnunar varð Trump reiður og sagði að NBC-stöðin væri rotin og spillt.

Áður hafði Trump sagt um Íransstríðið að hann hefið eyðilagt sjóher og flugher Írans en Walker hjá NBC lýsti efasemdum um það.

Hún minnti líka Trump á fyrirheit hans um að byrja ekki nein ný stríð. Þá sagði hann: „Ég lofaði ekki að það yrði nein ný stríð. Hvers vegna heldurðu að ég hafi byggt upp sterkasta her í heimi? Ég byggði upp herinn okkar.“

Loks var Trump nóg boðið og hann sagði: „Veistu hvað? Land getur aldrei orðið stórfenglegt með óheiðarlega fjölmiða. Förum!“

Hann reif síðan af sér hljóðnemann og stormaði út úr hljóðverinu. Walker reyndi hvað hún gat til að telja honum hughvarf og benti forsetanum á að hún hefði ferðast langa leið til að ræða við hann. En Trump var ekki haggað og sagði:

„Thank you darling, have a good time“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Fann 11 ára son sinn hengdan – Sagði það vera sjálfsvíg – Ekki var allt sem sýndist

Fann 11 ára son sinn hengdan – Sagði það vera sjálfsvíg – Ekki var allt sem sýndist
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Fyrrum slökkviliðsmaður ók í átta klukkustundir til að myrða fjölskyldu fyrrum unnustu sinnar

Fyrrum slökkviliðsmaður ók í átta klukkustundir til að myrða fjölskyldu fyrrum unnustu sinnar
Pressan
Í gær

Melania varð brjáluð – Sérstök regla um Barron var brotin

Melania varð brjáluð – Sérstök regla um Barron var brotin
Pressan
Fyrir 2 dögum

Morðmál sem vafðist fyrir lögreglu í 35 ár leystist eftir óvænta játningu

Morðmál sem vafðist fyrir lögreglu í 35 ár leystist eftir óvænta játningu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vilja grafa upp lík Dyatlov-hópsins: Gæti ráðgátan loks verið að leysast?

Vilja grafa upp lík Dyatlov-hópsins: Gæti ráðgátan loks verið að leysast?