
Maður klæðir sig enn betur, dregur húfuna vel niður og vonar að þetta dugi. En samt sem áður er eins og veikindin nái að smeygja sér inn og skiptir þá engu hversu vel maður pakkaði sér inn.
En kannski höfum við einblínt á ranga staði líkamans.
Kuldi breytir vörnum líkamans
Þegar hitastigið lækkar, breytist hversdagslíf okkar. Við erum meira inni, erum nær hvert öðru og deilum sama loftinu.
En kuldinn hefur einnig meiri bein áhrif á líkamann. Miðað við niðurstöður rannsóknar á hegðun veira þá þrífast margar öndunarfæraveirur betur við lágan hita en við eðlilegan líkamshita. Þetta þýðir að fyrstu varnarlínur líkamans verða mikilvægari en við höldum.
Eitt svæði er mjög mikilvægt í þessu samhengi, því það er þar sem veirur komast oft inn í líkamann. Þegar hitinn lækkar, veikjast ónæmisviðbrögð líkamans og það dregur úr blóðflæðinu. Þetta skapar betri skilyrði fyrir veirur til að fjölga sér. TV2 skýrir frá þessu.
Ekki bara höfuðið
Það er ekki bara höfuðið sem verður fyrir barðinu á kulda því niðurstöður rannsókna hafa sýnt að kaldir fætur geta veikt mótstöðuafl líkamans.
Veirur komast ekki inn í líkamann í gegnum fæturna en það virðist sem kuldinn setji af stað líkamlegt ferli sem gerir líkamann móttækilegri fyrir sýkingum.
Ef þú vilt draga úr líkunum á að veikjast á veturna, þá benda niðurstöður rannsókna helst á að:
Halda berskjölduðum svæðum líkamans heitum
Forðast langvarandi fótkulda
Þvo hendurnar vel.