
Michael Harding hélt af stað í það sem hann hélt að væri hefðbundið neyðarútkall vegna bilunar í loftkælingarbúnaði þann 22. september árið 2022. Þess í stað mætti hann örlögum sínum. Húsið sem hann var sendur til í Kentucky stóð í raun autt en þar beið hans leigumorðingi sem skaut hann til bana. Á opnu húsi í eigninni, fjórum dögum síðar, komu fasteignasali og áhugasamir leigjendur að líkinu.
Michael var giftur umferðarlögreglukonunni Julie Harding en þau voru skilin að borði og sæng. Nokkrum mánuðum eftir morðið svipti Julie sig lífi. Sumir gætu haldið að sorgin hafi borið hana ofurliði en það var ekki svo. Það var þráhyggja hennar fyrir manninum sem ætlaði að yfirgefa hana. Tveimur dögum áður en hún svipti sig lífi var hún handtekin fyrir umsáturseinelti og húsbrot gegn konunni sem Michael hafði tekið saman við.
Julie mun sjálf hafa komið manni sínum fyrir kattarnef en hún kærði sig ekki um að gera það sjálf heldur fékk annan í verkið. Sá maður, Thomas O’Donell, svarar nú til saka fyrir dómi. Hann er sakaður um að hafa þegið greiðslu frá Julie fyrir morðið. Um samantekin ráð hafi verið að ræða en ákæruvaldið hefur sýnt fram á að skipulagið hafi tekið töluverðan tíma en alls skiptust þau Julie og Thomas á 194 símtölum í aðdraganda morðsins. Julie hafði líka tekið grunsamlegar fjárhæðir út af bankareikningum þeirra hjónanna, eða um 28 milljónir. Telur ákæruvaldið að þessir peningar hafi verið greiðslan fyrir morðið.
Thomas segist þó saklaus og telur að ákæruvaldið hafi ekkert í höndunum sem sanni að hann hafi skotið Michael til bana.
__________________________
Í þessari frétt er fjallað um þunglyndi og sjálfsvíg. Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.