fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi

Pressan
Sunnudaginn 26. apríl 2026 07:30

Þessi mynd hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum til að "auglýsa" lýðveldið Narva. Skjáskot/Telegram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússneskumælandi spjallsíður í Eistlandi hafa að undanförnu verið uppfullar af orðrómum um að bærinn Narva og héraðið, sem hann er í, sé nú að segja skilið við Eistland og verði að rússnesku lýðveldi.

Politico skýrir frá þessu og segir að eistnesk yfirvöld séu meðvituð um þessa orðróma og hvetji fólk til að hlusta ekki á þetta enda sé enginn fótur fyrir þessu.

Katri Raik, bæjarstjóri í Narva, segir að hér sé um hreinan uppspuna að ræða og að hún neyðist til að skamma þá sem gera mikið úr þessu.

98% af hinum 50.000 íbúum Narva eru rússneskumælandi og rúmlega þriðjungur þeirra er með rússneskt vegabréf.

Héraðið hefur verið hluti af Eistlandi síðan Eistland sagði skilið við Sovétríkin 1990.

Politico bendir á margir hafi áhyggjur af að Narva sé næst á „verkefnalista“ Pútíns og hafa orðrómar um það gengið allt síðan Rússar lögðu Krím undir sig 2014.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt