
Árlegum kvöldverði samtaka fréttaritara lauk með látum í Washington í gærkvöldi, skömmu eftir að hann hófst. Þegar gestir höfðu verið boðnir velkomnir heyrðust skothljóð og leyniþjónustan ákvað að koma Donald Trump Bandaríkjaforseta, eiginkonu hans og ráðherrum í skjól. Engan úr ríkisstjórninni sakaði og tókst að yfirbuga skotmanninn án manntjóns. Einn leyniþjónustumaður varð fyrir skoti en það hæfði skothelt vesti hans og olli ekki alvarlegum áverkum.
Trump greindi frá því á blaðamannafundi í framhaldinu að skotmaðurinn, sem heitir Cole Thomas Allen, hafi verið einn að verki en að hann hafi verið með mörg vopn á sér. Talið er að Allen hafi bókað sér herbergi á hótelinu þar sem kvöldverður fréttaritara fór fram og þannig hafi honum tekist að smygla vopnunum inn. Forsetinn tók fram á blaðamannafundinum að Hilton-hótelið væri greinilega ekki örugg bygging og því væri nauðsynlegt að áform hans um öruggan veislusal í austurálmu Hvíta hússins fái fram að ganga. Salinn vill Trump reisa ofan á gríðarstóru neðanjarðarbyrgi sem á að hýsa lykilfólk stjórnkerfisins ef til stórátaka kemur. Trump hefur lýst því svo að veislusalurinn sé í raun bara skúr ofan á neðanjarðarbyrginu. Allir gluggar eiga að vera skotheldir og veislusalurinn mun eins þjóna því hlutverki að verja neðanjarðarbyrgið fyrir drónum, kúluregni og öðrum árásum.
Skotmaðurinn heitir, eins og áður segir, Cole Thomas Allen. Hann er 31 árs vélaverkfræðingur sem starfaði sem leiðbeinandi hjá fyrirtæki sem sérhæfir sig í að undirbúa ungmenni undir háskólanám. Hann er búsettur í Kaliforníu. Hann er eins menntaður sem tölvunarfræðingur og mun hafa starfað við tölvuleikjagerð í hjástörfum. CNN hefur greint frá því að árið 2024 hafi Allen styrkt kosningabaráttu Kamölu Harris um tæpar þrjú þúsund krónur, en Harris bauð sig fram gegn Donald Trump í forsetakosningunum. Hann er þó ekki skráður demókrati og er samkvæmt opinberri skráningu óflokksbundinn.
Stuðningsmenn forsetans voru fljótir að taka undir með honum á samfélagsmiðlum um að veislusalurinn væri nauðsynlegur en dómari stöðvaði framkvæmdirnar í byrjun mánaðar. Taldi dómarinn að Trump hefði farið út fyrir sitt valdsvið þegar hann ákvað að rífa austurálmu Hvíta hússins til að reisa þar veislusalinn. Forsetinn sé umráðamaður Hvíta hússins en ekki eigandi þess. Verndarsamtökin National Trust for Historic Preservation, hafa mótmælt framkvæmdunum. Áfrýjunardómstóll sneri þó niðurstöðunni við í síðustu viku og heimilaði forsetanum að hefja framkvæmdir að nýju.
Trump hefur lengi eldað grátt silfur við fréttamenn og hafði sökum þess sniðgengið viðburðinn á fyrra kjörtímabili sínu í embætti sem og í fyrra. Þegar Trump mætti ekki til kvöldverðarins árið 2017 var það í fyrsta sinn sem sitjandi forseti sniðgekk viðburðinn síðan Ronald Reagan forfallaðist árið 1981 þar sem hann var að jafna sig eftir banatilræði.
And just like that, the media went silent about the Trump Ballroom.
— Laura Loomer (@LauraLoomer) April 26, 2026
I don’t want to hear one more fucking criticism of Trump’s new ballroom at the White House.
— Meghan McCain (@MeghanMcCain) April 26, 2026
I dont want to hear another democrat ever complain about President Trump building a ballroom again.
All future WHCD and other events need to be in the WHITE HOUSE BALLROOM.
PERIOD.
— Sassafrass84 (@Sassafrass_84) April 26, 2026
We’d better never again hear a peep from anyone complaining about a White House ballroom.
— Randy Fine (@VoteRandyFine) April 26, 2026
THIS IS WHY WE NEED TRUMP’S BALLROOM
— Libs of TikTok (@libsoftiktok) April 26, 2026
When Democrats don’t get their way, they get dangerous. Build the White House ballroom ASAP.
— Brilyn Hollyhand (@BrilynHollyhand) April 26, 2026
Ya, know if Trump’s Ballroom was completed and the WHCD were held there this never would have happened. pic.twitter.com/jkdCcLfEtd
— Jon Justice (@JonJustice) April 26, 2026
Thank God President Trump is building a ballroom at the White House
— Jack Posobiec (@JackPosobiec) April 26, 2026