
Ástæðan er að hún hefur gefið honum leyfi til að stunda kynlíf með tengdamóðurinni og yngri systur sinni.
Þannig að ef þú hélst að fjölskyldan þín væri óvenjuleg og flókin, þá skaltu hugsa þig um því það er líklega ekki neitt í samanburði við þessa fjölskyldu.
Madi, sem býr í Bandaríkjunum, skýrði frá þessu á TikTok og hafa milljónir manna misst andlitið við að heyra hana segja frá þessu.
Í myndbandi hennar kemur fram að hún og maðurinn hennar séu í „opnu sambandi“ þar sem mörk „fjölskylduskemmtunar“ séu allt önnur en á flestum heimilum.
Hún, maðurinn hennar, móðir hennar og yngri systir hennar eru öll mjög virk í „svinginu“ (makaskiptum).
„Ég og mamma eru báðar „svingarar“ og það er frábært. Veistu af hverju? Af því að þegar ég er ekki í stuði leyfi ég manninum mínum bara að fá hana,“ segir hún í myndbandinu.
Hún bætir síðan við að hún leyfi manninum sínum að „skemmta“ sér með tengdó tvisvar-þrisvar í viku.
En þar með er ekki öll sagan sögð því fleiri fjölskyldumeðlimir sjá um „umönnun“ eiginmannsins þegar Madi er ekki sjálf í stuði. Hún segir að hún hafi fundið hina fullkomnu uppskrift til að halda manninum ánægðum alla daga.
„Viltu vita hvernig ég held manninum mínum ánægðum? Ég leyfi honum líka stundum að „leika“ við yngri systur mína,“ sagði þessi mjög svo frjálslynda kona.