
Allt hófst þetta þegar hún var að tala við manninn sinn og sagði honum að hún pissi oft í þegar hún stendur undir heitri bununni í sturtunni.
Honum brá mjög við þessa játningu hennar og fannst þetta nú frekar ógeðslegt.
Til að sanna fyrir manninum að hún væri nú ekki einhver sóði leitaði hún eftir stuðningi í umræðuhópnum Mumsnet enda var hún fullviss um að þetta sé eitthvað sem mjög margir gera í sturtunni.
Í færslu sinni færði hún rök fyrir því að það sé bæði praktískt og umhverfisvænt að pissa í sturtunni: „Heitt vatn fær mig til að þurfa að pissa og ég nenni ekki að fara út úr sturtunni, bleyta gólfið eða þurrka mig til að fara á klósettið. Þess utan sparar þetta vatn því maður þarf ekki að sturta niður. Vatnið skolar þessu bara á brott og þetta er bara þvag. Ég hélt að allir gerðu þetta.“
En stuðningurinn lét á sér standa og athugasemdakerfið sprakk nánast þegar fólk lét skoðanir sínar í ljós. Flestir töldu þetta viðbjóðslega venju og tilheyrði aðeins fortíðinni.
„Þetta er ljót venja. Ég væri ekki hrifin ef maðurinn minn gerði þetta,“ sagði ein og önnur kvað enn fastar að orði: „Ég finn alltaf þegar einhver er „sturtu-pissari“. Baðherbergið þeirra lyktar eins og hlandskál á almenningssalerni. Eini staðurinn fyrir þvag er klósettið.“
En þó kom her „sturtu-pissara“ konunni til varnar og sagðist fólkið ekki telja neitt rangt við að láta þvag frá sér í sturtunni svo lengi sem það fer allt beint í niðurfallið.
Konan fékk því ekki þann stuðning sem hún vonaðist eftir en eitt lærði hún af þessu – að fólk hefur sterkar skoðanir á því sem gerist í sturtunni.