
Stephen var sakfelldur fyrir morð af fyrstu gráðu vegna dauða fjögurra mánaða dóttur þáverandi kærustu hans, Heather Mares, sem lést árið 1998.
Málið vakti athygli á sínum tíma, meðal annars vegna þess að Martinez hafði sjálfur hringt í neyðarlínuna og tilkynnt að barnið væri að kafna. Þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn kom í ljós að barnið var með höfuðkúpubrot og þá fundust blóðug rúmföt einnig í þvottavél.
Allt þetta varð til þess að grunur beindist að Martinez og við yfirheyrslur viðurkenndi hann að hafa hrist stúlkuna þegar hún grét og að höfuð hennar hefði rekist í rimlarúm. Hann hélt því þó fram að um slys hefði verið að ræða. Dómstólar féllust ekki á þá skýringu og var hann dæmdur í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn.
Á dögunum felldi dómari í Denver, Andrew Luxen, dóminn úr gildi eftir að ný gögn voru lögð fram af Korey Wise Innocence Project. Um er að ræða samtök í Colorado sem vinna að því að hjálpa fólki sem hefur verið ranglega sakað um glæpi.
Stofnandinn, Korey Wise, er sjálfur einn af svonefndum Exonerated 5-hópi manna sem voru ranglega dæmdir fyrir alvarlegt ofbeldisbrot í Central Park í New York City árið 1989.
Samkvæmt samtökunum bendir nýtt sérfræðimat og endurmat á krufningu til þess að Heather hafi látist af fylgikvillum lungnabólgu en ekki vegna áverka. Þóttu gögnin nógu sterk til að dómari mæti það svo að verulegur vafi væri á sekt Martinez í málinu.
Saksóknarinn í Denver, John Walsh, sagði í yfirlýsingu að embætti hans hefði farið yfir nýju gögnin ásamt óháðum sérfræðingum. Niðurstaðan hafi verið sú að ekki væri lengur hægt að sanna sekt hans umfram skynsamlegan vafa, sem er grundvallarskilyrði í sakamálum. Því hefði verið ákveðið að leggjast ekki gegn sýknu.
Walsh tók jafnframt fram að ekkert benti til þess að mistök eða misferli hefðu átt sér stað í upprunalegri rannsókn málsins. Málið væri fremur dæmi um að réttarkerfið geti endurmetið eldri niðurstöður þegar ný gögn koma fram.
Fjölskylda barnsins er þó ósátt við niðurstöðuna. Foreldrar Heather hafa lýst því yfir að þau telji Martinez enn bera ábyrgð á dauða stúlkunnar og að hann hafi aldrei sýnt iðrun. Móðir barnsins sagði að ákvörðunin hefði verið þungbær og rifjað upp áratuga langa sorg fjölskyldunnar.