fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Sálfræðingur segir að svona sé hægt að sjá hvort einhver sé lygari á nokkrum sekúndum

Pressan
Fimmtudaginn 23. apríl 2026 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sumt fólk er með persónuleikaeinkenni sem gera að verkum að það er líklegra til að ljúga eða stjórna fólki með blekkingum. Meðal þessara persónuleikaeinkenna eru siðblinda, sjálfsdýrkun og sadismi.

Sálfræðingurinn Leanne ten Brinke, hjá University of British Columbia, hefur rannsakað þessi persónuleikaeinkenni árum saman. Business Insider segir að hún vinni að rannsóknum á hvaða áhrif þessi persónuleikaeinkenni hafa á hegðun fólks í félagslegum samböndum.

Markmiðið er ekki að greina fólkið, heldur að skilja mynstrið sem tengist hegðun fólksins og til að verða betri í að takast á við óheiðarleika eða blekkingar.

Margir halda að það sé hægt að koma upp um lygara með því að lesa í líkamstjáninguna. Því hefur til dæmis verið haldið fram að ef manneskja forðast augnsamband eða virðist taugaóstyrk, þá sé hún að ljúga.

En þessi merki eru ekki sérstaklega traust. Rannsóknir hafa sýnt að fólk, sem segir sannleikann, og fólk, sem lýgur, hegðar sér oft á mjög svipaðan hátt hvað varðar augnsamband.

Þess vegna er auðvelt að gera mistök ef maður fylgist bara með líkamstjáningunni. Þess í stað er betra að hlusta meira á hvað fólk segir.

Mikilvægur munur á lygara og þeim sem segja satt leynist oft í svörum þeirra.

Þeir sem segja satt eiga yfirleitt auðveldara með að gefa nákvæmar skýringar. Þess vegna geta opnar spurningar verið gagnlegar. Spurningar sem krefjast útskýringa í stað einfalds já eða nei. Þetta gerir fólki erfiðara fyrir að halda sig við lygina.

Óvæntar spurningar geta einnig gert fólki erfiðara fyrir við að skálda upp sögu. Ef manneskja er ekki viðbúin, getur verið erfitt að koma með skýrt og nákvæmt svar.

Vísindin benda því á einfalda aðferð – Með því að spyrja opinna og óvæntra spurninga hratt, er oft hægt að leggja mat á hvort viðmælandinn á erfitt með að koma með samhangandi svar. Það getur verið merki um að viðkomandi segi ekki satt.


Leiðrétting: Í upphaflegri útgáfu fréttarinnar var orðið psychopathy þýtt sem geðrof. Það er rangt og er réttari þýðing á orðinu annað hvort siðblinda eða andfélagsleg persónleikaröskun. Fréttin hefur verið uppfærð.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur varar fólk við að steikja beikon í airfryer

Sérfræðingur varar fólk við að steikja beikon í airfryer