fbpx
Laugardagur 08.nóvember 2025
Pressan

Morðið á Charlie Kirk: Telja sig hafa borið kennsl á sakborning

Pressan
Fimmtudaginn 11. september 2025 22:08

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýjar vendingar hafa orðið í rannsókn lögreglu á morði áhrifavaldsins Charlie Kirk, en að sögn BBC telur lögregla sig hafa borið kennsl á sakborning sem er grunaður um að koma við sögu í málinu. Ekki liggur fyrir hvort um sé að ræða karlmann sem myndir voru birtar af fyrr í kvöld.

CBS hefur þetta eftir tveimur embættismönnum og heimildarmanni innan lögreglunnar. Ekki er búið að gefa út handtökuskipun að svo stöddu og lögregla segir ekki tímabært að upplýsa um nafn sakborningsins.

Donald Trump ítrekaði í kvöld þá afstöðu sína að morðið sé „öfgafulla vinstrinu“ að kenna. Hann minnir á að Kirk hafi verið mótfallinn ofbeldi og hvetur stuðningsmenn sína til að heiðra minningu áhrifavaldsins með því að hefna ekki fyrir morð hans með því að grípa sjálfir til ofbeldis.

„Hann talaði á móti ofbeldi. Þannig vil ég að fólk bregðist við þessu.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Setti Repúblikanaflokkinn á hliðina með viðtali við umdeildan áhrifavald og er nú kallaður heigull

Setti Repúblikanaflokkinn á hliðina með viðtali við umdeildan áhrifavald og er nú kallaður heigull
Pressan
Fyrir 2 dögum

Birta hrollvekjandi myndband af flugslysinu í Kentucky

Birta hrollvekjandi myndband af flugslysinu í Kentucky
Pressan
Fyrir 4 dögum

Telja sig vita hvert Andrés fyrrum Bretaprins ætli að flýja eftir fjölmiðlafárið

Telja sig vita hvert Andrés fyrrum Bretaprins ætli að flýja eftir fjölmiðlafárið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Nýjasta tækið í vopnabúri Pútíns vekur óhug

Nýjasta tækið í vopnabúri Pútíns vekur óhug