fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Pressan

Maður sem var að forðast reiða eiginkonu braust inn á mannlaust heimili til að skella sér í bað og elda sér mat

Pressan
Föstudaginn 20. júní 2025 19:15

Mynd/Pixabay

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að eiga maka, sérstaklega ef það fýkur í hann. Maður í Flórída var meðvitaður um þetta þegar hann braust inn í hús hjá ókunnugum til að skella sér í bað, fá sér að borða og til að forðast reiða eiginkonu sína.

Innbrotið átti sér stað þann 9. júní og hefur maðurinn nú verið ákærður fyrir brotið. Lögreglumenn virðast hafa skemmt sér konunglega við rannsókn málsins en þeir líkja rannsókn sinni við söguna um Gullbrá og birnina þrjá.

„Húsráðandi var að bregða sér af bæ svo hann bað nágranna sinn að vakta húsið,“ sagði lögregla í yfirlýsingu og bætti við að nágranninn hefði heldur betur staðið sig í stykkinu.

„Kvöld eitt sá nágranninn ljósin blikka í húsinu svo hann hringdi í húsráðanda, sem hafði samband við hverfavakt lögreglunnar. Lögreglumenn fóru á staðinn og fundu þar inni mann sem var á fullu við að elda og hafði rétt lokið við að láta sér renna í bað. Við reiknum með að baðvatnið hafi hvorki verið of heitt né of kalt heldur aaaalveg mátulegt.“

Lögregla hafði afskipti af þessum óboðna gesti sem reyndist vera 44 ára karlmaður sem gekkst greiðlega við því að eiga ekkert erindi inn í húsnæðið og hafði ekki hugmynd um hver ætti það.

„Hann sagði lögreglumönnum að hann hefði lent í rifrildi við eiginkonu sína og vildi ekki fara heim svo hann ákvað að fara bara inn á heimili einhvers annars.“

Umræddur maður hafði ekki komið við sögu hjá lögreglu áður en hann hafði látið vel fara um sig í þessu húsnæði í fjóra daga áður en upp um hann komst.

Miami Harald greinir frá. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Stærsti getnaðarlimur heims – Stærðin eyðilagði fyrsta skiptið

Stærsti getnaðarlimur heims – Stærðin eyðilagði fyrsta skiptið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Er hollt að baða sig í ísköldu vatni eða sjó?

Er hollt að baða sig í ísköldu vatni eða sjó?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Víðar nærbuxur – Betra sæði

Víðar nærbuxur – Betra sæði
Pressan
Fyrir 3 dögum

Á þessum tímum dags áttu að taka snjallúrið af þér

Á þessum tímum dags áttu að taka snjallúrið af þér