fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Pressan

Þetta áttu aldrei að hita í örbylgjuofni

Pressan
Laugardaginn 1. febrúar 2025 17:00

Það á ekki að setja allan mat í örbylgjuofninn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Örbylgjuofninn er mjög praktísk uppfinning. Hann getur sparað tíma í eldhúsinu og gert eldamennskuna mun auðveldari en ella. En hann hentar ekki fyrir allan mat. Sumar matartegundir verða hættulegar við að vera hitaðar í örbylgjuofni, áferð annarra breytist og bragðið getur jafnvel orðið undarlegt þegar matur er hitaður í örbylgjuofni.

Meðal þess sem á aldrei að hita í örbylgjuofni eru þessi matvæli:

Egg í skurninni – Það er ekki snjallt að hita egg í skurninni í örbylgjuofni því þegar eggið hitnar, þá myndast gufa inni í skurninni og hún getur valdið því að eggið springur, annað hvort í ofninum eða þegar það er komið út úr honum. Ef þú þarft nauðsynlega að hita egg, gerðu það þá við lágan hita á eldavélinni eða skerðu það í litla hluta áður en þú hitar það.

Hrísgrjón – Það hljómar kannski undarlega en það getur beinlínis verið hættulegt að hita hrísgrjón upp í örbylgjuofni. Þau geta innihaldið bakteríugró sem lifa eldamennskuna af. Ef grjónin eru ekki geymd á réttan hátt, þá geta bakteríurnar fjölgað sér og þær drepast ekki endilega ef grjónin eru hituð upp í örbylgjuofn. Gættu þess að kæla hrísgrjón alltaf hratt eftir að þau eru tilbúin til neyslu og hitaðu  þau bara upp einu sinni.

Kjúklingur – Kjúklingur er þekktur fyrir að bæði bragðið og áferðin breytast þegar hann er hitaður upp í örbylgjuofni. Ójöfn hitadreifingin getur valdið því að sumir hlutar kjötsins hitna ekki nægilega vel og það getur verið hættulegt heilsu þeirra sem borða hann. Ef þú þarft að hita kjúkling upp, þá eru ofninn eða pannan betri kostur.

Fiskur – Fiskur og örbylgjuofn eru sjaldan góð blanda. Fyrir utan mikla fisklykt þá getur ofninn gert fiskinn þurran og gúmmíkenndan. Ef þú þarf að hita fisk upp, þá er betra að nota gufusuðupott eða ofninn.

Kartöflur – Ef kartöflurnar eru ekki geymdar á réttan hátt, þá geta bakteríur myndast í þeim og þær drepast ekki þegar kartöflurnar eru hitaðar upp. Þess utan getur áferðin breyst og þær geta eiginlega orðið þurrar og leiðinlegar.

Brauð – Það virðist nú vera einföld og góð hugmynd að setja brauðsneið í örbylgjuofninn en það er eiginlega ekki góð hugmynd. Brauðið verður oft gúmmíkennt eða þurrt þegar það er hitað upp í örbylgjuofni. Það er betra að nota brauðristina eða ofn til að hita það upp.

Pítsa með osti – Örbylgjuofninn getur hitað pítsuna en hann gerir sjaldan nokkuð gott fyrir ostinn. Osturinn getur orðið seigur og olíukenndur. Það er betra að nota ofninn eða pönnu til að hita pítsuna upp.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“