fbpx
Laugardagur 21.júní 2025
Pressan

Svona geturðu gert kynlífið betra

Pressan
Föstudaginn 20. júní 2025 21:30

Þarft þú að hressa upp á kynlífið?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir hafa upplifað þetta – Sambandið gengur sinn vanagang, kynlífið er . . . ágætt. Stundum gott. Stundum svolítið fyrirsjáanlegt. Þá kemur að aðalpunktinum í þessari grein – þú getur gert kynlífið betra án þess að draga makann með í parameðferð, með því að þvinga hann til að prófa eitthvað nýtt í kynlífinu eða með „stóra samtalinu“. Þú getur einfaldlega byrjað á sjálfum/sjálfri þér og það virkar!

Slökktu á sjálfstýringunni – Þú veist nákvæmlega hvernig það byrjar og endar. Trúboðsstellingin. Þriggja mínútna gaman. Góða nótt. Þetta er ekki slæmt en þetta er vélrænt. Þegar þú tekur ábyrgðina á að gera hlutina ekki eins og venjulega, þá gerist eitthvað. Breyttu um hraða. Skiptu um stað. Byrjaðu á öðrum stað en þessum klassísku. Hið óvænta örvar.

Æfðu nærveru þína – Gott kynlíf byrjar í höfðinu og það þýðir að þú þarft að vera til staðar andlega. Ekki hugsa um fundi dagsins. Ekki greina andlitssvipbrigði makans. Vertu bara til staðar. Einbeittu þér að tilfinningunni, að viðbrögðunum, að stemmningunni. Þjálfaðu þetta eins og vöðva og þú verður betri með hverju skiptinu.

Vertu betri til að taka frumkvæðið – Sjálfstraust örvar. Skipulegðu eitthvað. Taktu stjórnina, ekki bara í svefnherberginu, heldur áður en það er farið þangað inn. Byggðu upp, gefðu til kynna. Örvaðu án þess að ganga að því vísu að þetta endi með kynlífi. Það gerir þig minna þurfandi og meira aðlaðandi.

Lifðu meira lifandi lífi – Leiðinlegt fólk stundar leiðinlegt kynlíf. Punktur. Þegar þú þróar sjálfan þig, þá upplifirðu nýja hluti, setur líkamann í forgang og skapið og þá kemur löngunin og orkan af sjálfu sér. Makinn tekur eftir þessu. Þú tekur eftir þessu.

Talaðu minna, hlustaðu meira – Þetta snýst ekki um að vera með „umsagnartíma“ eftir kynlíf. Þetta snýst um að hafa athyglina í lagi áður en makinn segir  eitthvað. Hlustaðu með höndunum, með augunum, með öllum líkamanum. Makinn leiðbeinir þér en bara ef þú tekur eftir því.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Stærsti getnaðarlimur heims – Stærðin eyðilagði fyrsta skiptið

Stærsti getnaðarlimur heims – Stærðin eyðilagði fyrsta skiptið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Er hollt að baða sig í ísköldu vatni eða sjó?

Er hollt að baða sig í ísköldu vatni eða sjó?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Víðar nærbuxur – Betra sæði

Víðar nærbuxur – Betra sæði
Pressan
Fyrir 3 dögum

Á þessum tímum dags áttu að taka snjallúrið af þér

Á þessum tímum dags áttu að taka snjallúrið af þér