fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Pressan

Stærsti getnaðarlimur heims – Stærðin eyðilagði fyrsta skiptið

Pressan
Fimmtudaginn 19. júní 2025 03:15

Matt Barr.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flestir karla hafa eflaust, að minnsta kosti innra með sér, óskað þess að getnaðarlimur þeirra væri nokkrum sentimetrum lengri og jafnvel aðeins sverari. En ef maður spyr Matt Barr, sem er sagður vera með stærsta getnaðarlim heims, er það allt annað en kostur að vera með mjög stóran lim. Stærðin hefur valdið honum meiri vanda en unaði.

Limur hans er 36,5 cm á lengd og ummál hans er 21,6 cm. Þetta hljómar ótrúlega en þetta hefur verið staðfest með mælingum.

Barr segir að líf hans hafi ekki alltaf verið auðvelt þegar kemur að kynlífi. Í samtali við Dr. Rena Malik sagði hann að „fyrsta skiptið“ hans hafi tæknilega séð aldrei átt sér stað.

„Við reyndum en komust að því að þetta var ópraktískt líkamlega séð. Hún vildi bara að fólk héldi að við hefðum gert það, einhverskonar montstatus,“ sagði hann.

Hið raunverulega „fyrsta skipti“ átti sér ekki stað fyrr en löngu síðar. „Það gekk ekki vel. Ég varð að fara á sjúkrahús. Ekki beinlínis frábært,“ sagði hann.

Dr. Malik sagði í viðtalinu að leggöng kvenna séu að meðaltali 9 cm þegar konan er ekki kynferðislega örvuð og þrátt fyrir að kona sé kynferðislega örvuð, þá sé ósennilegt að hún geti tekið við getnaðarlim af þeirri stærð sem prýðir Barr.

„Ég vissi ekki hvað ég var að gera. Eins og margir strákar þegar þeir gera það í fyrsta sinn. En síðan þá hef ég lagt hart að mér að læra hvernig ég get gert þetta öruggara og þægilegra fyrir báða aðila,“ sagði Barr.

Hann hefur upplifað mörg pínleg augnablik í kynlífinu og eitt sinn endaði það illa.

„Ég tók hann út og í hugsunarleysi, sveiflaði ég honum. Hún stóð nærri mér og fékk heilahristing. Við hlæjum að þessu í dag en á þessum tímapunkti var þetta algjör klikkun,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þrír unglingspiltar ákærðir – Lokkuðu samkynhneigða í gildru – Skutu eitt fórnarlambið í höfuðið

Þrír unglingspiltar ákærðir – Lokkuðu samkynhneigða í gildru – Skutu eitt fórnarlambið í höfuðið
Pressan
Í gær

„Mjög sársaukafullt“ einkenni getur fylgt nýju kórónuveiruafbrigði

„Mjög sársaukafullt“ einkenni getur fylgt nýju kórónuveiruafbrigði
Pressan
Fyrir 2 dögum

Of lítill svefn fær þig kannski til að borða meira af kökum

Of lítill svefn fær þig kannski til að borða meira af kökum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Súkkulaðineysla getur aukið kynhvöt karla og bætt frammistöðuna í kynlífinu

Súkkulaðineysla getur aukið kynhvöt karla og bætt frammistöðuna í kynlífinu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hversu hollt er að drekka vín daglega? – Sérfræðingar svara því

Hversu hollt er að drekka vín daglega? – Sérfræðingar svara því
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna setja sumir sítrónu í uppþvottavélina

Þess vegna setja sumir sítrónu í uppþvottavélina