New York Post greinir frá þessu.
Um var að ræða 47 feta skútu sem sigldi undir frönskum fána og fengu viðbragðsaðilar fyrstu tilkynningu um að ekki væri allt með felldu þann 25. ágúst síðastliðinn. Skipum í nágrenninu var gert viðvart og þá var HC-130 herflugvél send í loftið til að leita eftir skútunni.
Eftir leit í dágóðan tíma komu flugmenn vélarinnar augu á skútuna og komust þeir í samband við konuna sem var um borð. Sagði konan að hún og dóttir hennar væru einar um borð ásamt gæludýrum þeirra, ketti og skjaldböku. Bætti hún við að skipstjórinn hefði dáið nokkrum dögum áður en dánarorsök liggur ekki fyrir.
Veður á þessum slóðum var afar slæmt í síðustu viku og gekk fellibylurinn Gilma til dæmis yfir svæðið. Mæðgunum var að lokum komið til bjargar þegar flutningaskipi í nágrenninu var gert viðvart um nákvæma staðsetningu skútunnar. Var mæðgunum komið um borð í skipið og þeim siglt til Honolulu.
Ekki tókst að koma taug í skútuna og er hún því enn á reki einhvers staðar í Kyrrahafinu. Að sama skapi tókst ekki að ná í lík skipstjórans sem er enn um borð í skútunni.