CBC hefur eftir saksóknara í Mexíkó að Agnew hafi fundist látin á hóteli í Play Del Carmen. Söfnun var sett af stað á GoFundMe til að aðstoða fjölskyldu hennar við að flytja lík hennar heim til Kanada. Á síðunni segir að Agnew hafi verið í „draumafríinu“ sínum ásamt unnusta sínum en það hafi breyst í „martröð“.
Kanadísk yfirvöld veita fjölskyldu Agnew nú nauðsynlega aðstoð vegna málsins en vilja ekki veita neinar upplýsingar um málið.