Sky News skýrir frá þessu. Fram kemur að gögn WHO sýni að á milli 13,3 og 16,6 milljónir hafi látist af völdum COVID-19 frá 1. janúar 2020 til ársloka 2021. Samkvæmt opinberum tölum létust sex milljónir á þessu tímabili.
WHO segir að tölurnar séu niðurstöðu samkeyrslu á gögnum frá ríkjum heims og reiknilíkönum þar sem umframdánartíðni sé tekin með í reikninginn.