fbpx
Mánudagur 13.maí 2024
Pressan

Segir þetta fjögur lykilatriði til að léttast

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 12. mars 2022 18:00

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dr Michael Mosley er frægur fyrir að hafa þróað hina svokölluðu Fast 800 aðferð til að grennast en þetta er sögð vera ný útgáfa af 5:2 megruninni sem hefur að sögn hjálpað mörg þúsund manns að losna við aukakíló.

Mirror segir að Mosley, sem er ákafur talsmaður Miðjarðarhafsmataræðisins, telji að Fast 800 sé besta leiðin fyrir alla sem vilja léttast. Haft er eftir honum vísindin hafi sýnt að áhrifamesta leiðin til að léttast sé að fylgja áætlun sem feli í sér föstu með reglulegu millibili, að borða sé á ákveðnum tímum og að Miðjarðarhafsmataræði sé fylgt. „Þess vegna fann ég Fast 800 upp,“ sagði hann.

Hér er yfirlit yfir fjögur lykilatriði varðandi mataræði þeirra sem vilja léttast:

Dragðu úr sykurneyslu. Mosley mælir með að þeir sem vilja léttast hratt „skeri vel niður í sykurneyslu, sykruðu nammi, drykkjum og eftirréttum“. Þar falla flestar tegundir morgunkorns undir og margir tilbúnir þeytingar. Hann sagði að það að skera niður sykurneyslu sé sé lykilinn að því að minnka magafituna.

Fasta er að hans mati leið til að auka fitubrennslu. Samkvæmt Fast 800 aðferðinni á ekki að innbyrða meira en 800 hitaeiningar þá daga sem fastað er. Haft er eftir honum að þegar við borðum færri hitaeiningar en venjulega bregðist líkaminn við með því að auðvelda fitubrennslu.

Æfingar með mikilli ákefð eru eitt það besta sem er hægt að gera til að lifa löngu og heilbrigðu lífi að sögn Mosley. Hann benti á að æfingar einar og sér eru ekki nóg til að losna við fitu en þær auki möguleikana á að það gangi upp.

Borða minna af sterkju og kolvetnum. Hann hvetur fólk síðan til að stilla neyslu á kartöflum, brauði, pasta og hvítum hrísgrjónum í hóf því þessi matur innihaldi sterkju og mikið af kolvetnum. Þess í stað sé betra að fylgja lágkolvetna Miðjarðarhafsmataræði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Brandy hvarf að heiman – „Undarleg tilfinning sækir á mig“

Brandy hvarf að heiman – „Undarleg tilfinning sækir á mig“
Pressan
Í gær

Maðurinn sem getur ekki hætt að stela eggjum villtra fugla fékk dóm

Maðurinn sem getur ekki hætt að stela eggjum villtra fugla fékk dóm
Pressan
Fyrir 5 dögum

Hætta sölu AstraZeneca bóluefnisins

Hætta sölu AstraZeneca bóluefnisins
Pressan
Fyrir 5 dögum

Norska fjársjóðsleitin er hafin – Milljónir í boði og þú getur tekið þátt

Norska fjársjóðsleitin er hafin – Milljónir í boði og þú getur tekið þátt