fbpx
Föstudagur 26.júlí 2024
Pressan

Hætta sölu AstraZeneca bóluefnisins

Pressan
Miðvikudaginn 8. maí 2024 15:30

Bóluefni frá AstraZeneca. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lyfjafyrirtækið AstraZeneca hefur ákveðið að hætta sölu bóluefnisins Vaxzevira, sem var það fyrsta sem var tekið í notkun gegn kórónuveirunni, um allan heim.

Bóluefnið var þróað á sínum tíma af AstraZeneca í samvinnu við vísindamenn við Oxford háskólann.

The Telegraph skýrir frá þessu og segir að í tilkynningu frá fyrirtækinu komi fram að það hafi ekki skipt máli við þessa ákvörðun að bóluefnið getur í örfáum tilfellum valdið alvarlegum blóðtöppum. Það séu viðskiptalegir hagsmunir sem ráði þessu.

„Við erum ótrúlega stolt af því hlutverki sem Vaxzevira gegndi í að binda endi á heimsfaraldurinn. Óháð mat er að bóluefnið hafi bjargað rúmlega 6,5 milljónum mannslífa á fyrsta árinu sem það var í notkun. Rúmlega þrír milljarðar skammta hafa verið seldir á heimsvísu,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Framleiðslu bóluefnisins hefur verið hætt vegna lítillar eftirspurnar og vegna þess að fleiri bóluefni gegn kórónuveirunni eru nú aðgengileg.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 1 viku

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja
Pressan
Fyrir 1 viku

Óeirðir og ringulreið í Leeds eftir afskipti félagsmálayfirvalda

Óeirðir og ringulreið í Leeds eftir afskipti félagsmálayfirvalda
Pressan
Fyrir 1 viku

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband
Pressan
Fyrir 1 viku

Kveikti óvart á búkmyndavélinni í miðjum klíðum – Missti starfið og á yfir höfði sér dóm

Kveikti óvart á búkmyndavélinni í miðjum klíðum – Missti starfið og á yfir höfði sér dóm
Pressan
Fyrir 1 viku

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?
Pressan
Fyrir 1 viku

Átti erfitt með þvaglát – Ástæðan kom læknum gríðarlega á óvart

Átti erfitt með þvaglát – Ástæðan kom læknum gríðarlega á óvart