fbpx
Mánudagur 06.maí 2024
Pressan

Skírðu son sinn Skrifstofu tölfræðiupplýsingamiðlunar – Tengdaforeldrarnir fokvondir

Pressan
Þriðjudaginn 11. janúar 2022 12:00

Skrifstofa tölfræðiupplýsingamiðlunar virðist sáttur við voldugt nafnið.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sumir elska vinnuna sína aðeins meira en aðrir. Það á við um hinn 38 ára gamla Samet Wahyudi frá eyjunni Jövu á Indónesíu. Hann eignaðist barn á dögunum með unnustu sinni, Lindu, og í framhaldinu var ráðgert að hjónaleysin myndu ganga í það heilaga.

Samet setti hins vegar það skilyrði að sonurinn ungi yrði skírður í höfuðið á vinnustað hans Statistical Information Communication Office sem myndi í grófri þýðingu útleggjast sem Skrifstofa tölfræðiupplýsingamiðlunar. Á þetta féllst Linda með semingi en öðru máli gegndi um tengdaforeldra Samet sem urðu fokvondir yfir þessum fyrirætlunum til að byrja með. Mannasættirinn Samet náði þó á endanum sannfæra tengdó um að þetta væri farsæl niðurstaða.

Í samtali við indónesíska fjölmiðla segir hinn húsbóndaholli faðir að hann hafi fengið starf á skrifstofu tölfræðiupplýsingamiðlunar í borginni Brebes árið 2003 og að vinnustaðurinn hafði strax orðið eins og annað heimili hans. Hann hafi því viljað tengja son sinn við vinnustaðinn með einhverjum hætti og þar með kom hugmyndin um nafnið.

Nafnskírteinið þar sem er tekið fram gælunafnið Dinko
Stoltir foreldrar, Samet og Linda, með Skrifstofu tölfræðiupplýsingamiðlunar
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Skipstjórinn dæmdur í fjögurra ára fangelsi eftir harmleikinn

Skipstjórinn dæmdur í fjögurra ára fangelsi eftir harmleikinn
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir ofbeldi gegn fjórum kærustum sínum – Ein man bragðið af byssuhlaupinu

Dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir ofbeldi gegn fjórum kærustum sínum – Ein man bragðið af byssuhlaupinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tveggja ára barn lést í hoppukastaslysi

Tveggja ára barn lést í hoppukastaslysi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Reyndi að svindla á reglunum varðandi samakstur – Lögreglan sá við honum

Reyndi að svindla á reglunum varðandi samakstur – Lögreglan sá við honum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Óhugnaður í New York: Barnsmorðingi neyddi sex ára son sinn til að reyna að grenna sig á hlaupabretti

Óhugnaður í New York: Barnsmorðingi neyddi sex ára son sinn til að reyna að grenna sig á hlaupabretti
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ertu að taka inn lyf að staðaldri? – Þá er þetta gott að hafa í huga

Ertu að taka inn lyf að staðaldri? – Þá er þetta gott að hafa í huga