fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Pressan

Tveir skotnir í Svíþjóð í nótt

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 7. janúar 2022 05:57

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir menn á fertugsaldri voru skotnir í Tranås skömmu eftir miðnætti í nótt. Karlmaður á sextugsaldri var handtekinn í nótt, grunaður um aðild að skotárásinni.

Aftonbladet skýrir frá þessu. Fram kemur að lögreglan leiti fleiri árásarmanna.

Tilkynnt var um skothvelli í miðbæ Tranås klukkan 00.17. Á vettvangi fundu lögreglumenn mennina tvo sem höfðu verið skotnir. Þeir voru fluttir á sjúkrahús.

Talsmaður lögreglunnar sagði að þeir hafi verið með meðvitund og hafi getað rætt við lögreglumenn en annar þeirra hafi þó virst verr á sig kominn en hinn.

Vettvangsrannsókn hefur staðið yfir í nótt. Karlmaður á sextugsaldri var handtekinn og færður til yfirheyrslu skömmu eftir að tilkynnt var um skotárásina. Hann er grunaður um að hafa aðstoðað við morðtilraun.

Hinir særðu hafa báðir komið við sögu lögreglunnar áður og telur lögreglan að árásin tengist uppgjöri glæpagengja.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“