fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Segjast hafa þróað aðferð til að búa eldsneyti með sólarljós og lofti

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 14. nóvember 2021 17:00

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vísindamenn segjast hafa þróað aðferð til að búa til eldsneyti úr sólarljósi og lofti. Þetta er mjög athyglisvert því hægt er að nota þessa aðferð utan rannsóknarstofa. Þetta getur hugsanlega orðið til þess að hægt verði að framleiða CO2 laust eldsneyti fyrir skip og flugvélar.

En það er enn mikil vinna fram undan að sögn vísindamanna við að þróa aðferðina þannig að hægt sé að framleiða mikið magn eldsneytis.

Aðferðin er hluti af umfangsmiklum tilraunum til að þróa nýjar aðferðir til að draga úr losun CO2 frá flugvélum og skipum en sú losun er um 8% af heildarlosuninni á þessari gróðurhúsalofttegund.

Aðferðin sem um ræðir byggist á að taka koldíoxíð og vatn úr loftinu og nýta orku sólarinnar til að breyta þessu í blöndu af kolsýrlingi og súrefni. Síðan er annað tæki notað til að breyta þessari lofttegund í vökva sem er hægt að nota sem eldsneyti.

Ef kerfið verður stækkað nægilega mikið gæti það hugsanlega séð öllum flugvélum og skipum heims fyrir eldsneyti. En til þess þarf að reisa stórar verksmiðjur, svo stórar að stærð þeirra er sem nemur 0,5% af Saharaeyðimörkinni.

Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu Nature.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Lík í tveimur hlutum og ekkert blóð – Hver myrti Elizabeth?

Lík í tveimur hlutum og ekkert blóð – Hver myrti Elizabeth?
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Fann 11 ára son sinn hengdan – Sagði það vera sjálfsvíg – Ekki var allt sem sýndist

Fann 11 ára son sinn hengdan – Sagði það vera sjálfsvíg – Ekki var allt sem sýndist
Pressan
Í gær

Liggur þú á evrumynt? – Sumar geta verið mjög verðmætar

Liggur þú á evrumynt? – Sumar geta verið mjög verðmætar
Pressan
Í gær

Fyrrum slökkviliðsmaður ók í átta klukkustundir til að myrða fjölskyldu fyrrum unnustu sinnar

Fyrrum slökkviliðsmaður ók í átta klukkustundir til að myrða fjölskyldu fyrrum unnustu sinnar
Pressan
Í gær

Hundurinn þinn líkist þér miklu meira en þú heldur (og það er engin tilviljun)

Hundurinn þinn líkist þér miklu meira en þú heldur (og það er engin tilviljun)
Pressan
Í gær

Dularfullt mál líksins sem hvarf í skjóli nætur – Hvað varð um Julie Mott eftir að hún dó?

Dularfullt mál líksins sem hvarf í skjóli nætur – Hvað varð um Julie Mott eftir að hún dó?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svæsinn eltihrellir handtekinn á Tenerife

Svæsinn eltihrellir handtekinn á Tenerife
Pressan
Fyrir 2 dögum

Morðmál sem vafðist fyrir lögreglu í 35 ár leystist eftir óvænta játningu

Morðmál sem vafðist fyrir lögreglu í 35 ár leystist eftir óvænta játningu