fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Pressan

Prófessor við Harvard segir að vitsmunaverur séu til í öðrum sólkerfum – Sönnun þess fékkst 2017

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 10. janúar 2021 08:30

Oumuamua eins og talið er að hann líti út. Mynd:European Southern Observatory/M. Kornmesser

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hlutur úr öðru sólkerfi þaut fram hjá jörðinni 2017 og var þetta fyrsta merkið um að líf sé að finna utan jarðarinnar. Þetta er að minnsta kosti skoðun Avi Loeb, sem er stjörnufræðingur og prófessor við Harvard háskólann.

Hann skýrir frá þessu í nýrri bók sem kemur út síðar í mánuðinum. Business Insider skýrir frá þessu.

Vísindamenn í stjörnuathugunarstöð á Hawaii sáu „hlut geysast í gegnum innri hluta sólkerfisins okkar, hann fór svo hratt að hann gat aðeins hafa komið frá annarri stjörnu“ segir í kynningarefni frá Houghton Mifflin Harcourt bókaútgáfunni um bókina sem heitir „Extraterrestrial: The First Sign og Intelligent Life Beyond Earth“.

Eftir því sem Loeb, sem er með doktorsgráðu í eðlisfræði, segir þá var ekki um náttúrulegan hlut að ræða heldur geimrusl frá öðru sólkerfi. „Það er bara ein hugsanleg skýring, hluturinn var þróaður tæknihlutur búinn til af fjarlægu vitsmunasamfélagi,“ segir einnig í kynningunni.

Hluturinn fékk heitið 1I/2017 U1 Oumuamua hjá bandarísku geimferðastofnuninni NASA. „Þetta er í fyrsta sinn sem við staðfestum að hlutur frá öðru sólkerfi er í sólkerfinu okkar. Þessi gestur virðist vera ávalur steinhlutur með rauðleitu yfirbragði,“ sagði í lýsingu NASA á hlutnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Pútín horfir magnvana á nánustu bandamenn sína missa völdin

Pútín horfir magnvana á nánustu bandamenn sína missa völdin
Pressan
Fyrir 2 dögum

Stærsti kakóframleiðandi heims stendur frammi fyrir miklum vanda

Stærsti kakóframleiðandi heims stendur frammi fyrir miklum vanda
Pressan
Fyrir 2 dögum

Verkir í hnakka eru oft tengdir andlegri líðan

Verkir í hnakka eru oft tengdir andlegri líðan
Pressan
Fyrir 2 dögum

Marjorie Taylor Greene með hrollvekjandi viðvörun varðandi Trump – „Ég held að hann sé ekki að grínast“

Marjorie Taylor Greene með hrollvekjandi viðvörun varðandi Trump – „Ég held að hann sé ekki að grínast“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þessi merki um Parkinsonssjúkdóminn þekkir þú kannski ekki

Þessi merki um Parkinsonssjúkdóminn þekkir þú kannski ekki
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þessar bílategundir eru líklegastar til að ná 400.000 kílómetrum

Þessar bílategundir eru líklegastar til að ná 400.000 kílómetrum