fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Freista 8.000 starfsmanna Facebook með nýstárlegu tilboði

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 13. ágúst 2020 15:25

Færsla á Facebook bjargaði íbúum fjölbýlishúss frá hörmungum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúmlega 8.000 starfsmenn Facebook hafa fengið „gott tilboð“ frá fyrirtækinu. Þeim er nú boðið að vinna heima fram í júlí á næsta ári. Til að freista fólks enn frekar þá fá starfsmennirnir sem svarar til um 130.000 íslenskra króna ef þeir taka tilboðinu.

En starfsmennirnir mega ekki fara og kaupa sér nýtt eldhúsborð eða brauðrist fyrir peningana því þá á að nota til að koma upp „heimaskrifstofu“.

Talsmaður Facebook sagði í samtali við Reuters að tilboðið væri byggt á mati sérfræðinga og umræðu innan fyrirtækisins og því hafi verið ákveðið að bjóða starfsfólki upp á þann möguleika að vinna heima þar til í júlí 2021.

Facebook er ekki eina fyrirtækið sem vill heimila starfsfólki að vinna heima því það hafa til dæmis Google og Twitter gert.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár
Pressan
Í gær

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala
Pressan
Í gær

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“