fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Pressan

Flugstjórinn tók þessa mynd og fær aldrei að fljúga aftur

Ritstjórn Pressunnar
Þriðjudaginn 5. nóvember 2019 14:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flugstjórar og flugmenn þurfa að fylgja ströngum reglum í starfi sínu enda bera þeir ábyrgð á fjölda mannslífa meðan á flugi stendur. Flugstjóri einn í Kína fær aldrei að fljúga aftur eftir að mynd fór í dreifingu á samfélagsmiðlum.

Í frétt breska blaðsins Independent er umrædd mynd birt en þar má sjá konu sitja í sæti flugstjórans. Svo virðist vera sem myndin hafi verið tekin meðan vélin var í loftinu af sjálfum flugstjóranum, en um er að ræða flugvél kínverska flugfélagsins Air Guilin. Myndin var tekin þann 4. janúar síðastliðinn en fór í dreifingu á samfélagsmiðlum nýlega.

Forsvarsmenn Air Guilin tóku málið alvarlega og hafa yfirvöld nú afturkallað réttindi flugstjórans til að fljúga. Er hann sagður hafa brotið gróflega gegn lögum sem banna flugstjórum að hleypa farþegum um borð í flugstjórnarklefann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“