fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Pressan

Gerðu kynlífsmyndband og bjóða útvöldum aðila háa greiðslu fyrir að horfa á það

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 11. janúar 2019 07:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef þú ert sérfræðingur í kynlífi þá er hugsanlega tækifæri fyrir þig til að gera smá pening úr þessari sérfræðikunnáttu. Par frá Warwickshire á Englandi er að leita að kynlífssérfræðingi til að horfa á upptöku af þeim stunda kynlíf og gefa þeim síðan ráð um hvað má bæta í kynlífinu.

„Við stundum enn kynlíf nokkrum sinnum í mánuði en það er sjaldan sem við erum bæði sátt við það.“

Segir í auglýsingu þeirra á bark.com.

„Við reynum að láta þetta ganga hjá okkur og við löðumst enn kynferðislega að hvort öðru og elskum hvort annað en skortur á kynferðislegri ánægju er farinn að hafa áhrif á aðra þætti sambandsins. Við þörfnumst hjálpar skjótt því annars óttumst við að sambandið gæti endað og því leitum við að kynlífssérfræðingi eða ráðgjafa til að hjálpa okkur að sjá hvað við erum að gera rangt og gefa okkur ráð svo við getum kynt ástareldinn að nýju og endurlífgað frábært kynlíf okkar og hjónaband.“

Þau vilja því fá atvinnumann/konu til að setjast niður með sér og ræða þarfir þeirra og hversu mörgum sinnum þau þurfi að hitta viðkomandi.

„Ófrávíkjanleg krafa okkar er að viðkomandi verður að horfa á myndband af okkur stunda kynlíf og greina hvað við gerum rangt og segja okkur svo frá því.“

En það geta ekki allir sótt um því ástargúrúinn verður að hafa að minnsta kosti 10 ára reynslu af kynlífsráðgjöf og verður að skrifa undir þagnareið. Fyrir rétta sérfræðinginn er parið jafnvel reiðubúið til að greiða meira 1.000 pund sem þau auglýsa sem greiðslu fyrir vinnuna en það svarar til um 150.000 íslenskra króna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Tíu ára drengur játar á sig morð: Var sjö ára þegar hann framdi voðaverkið

Tíu ára drengur játar á sig morð: Var sjö ára þegar hann framdi voðaverkið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf
Pressan
Fyrir 2 dögum

Orrustan um Bretland

Orrustan um Bretland
Pressan
Fyrir 3 dögum

Áður óþekktar lífverur fundust við neðansjávarfjall við Páskaeyju – Myndband

Áður óþekktar lífverur fundust við neðansjávarfjall við Páskaeyju – Myndband
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ferðin til Mallorca endaði með nokkurra daga hryllingi og björgunaraðgerð á flugvelli í Afríku

Ferðin til Mallorca endaði með nokkurra daga hryllingi og björgunaraðgerð á flugvelli í Afríku