fbpx
Sunnudagur 05.maí 2024
Pressan

Ákærður fyrir að ræna 9 ára stúlku og nauðga – Er einnig grunaður í einu umtalaðasta morðmáli Danmerkur

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 13. maí 2019 21:00

Emilie Meng. Mál hennar er eitt umtalaðasta morðmál síðari tíma í Danmörku.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

35 ára karlmaður hefur verið ákærður af saksóknara á Jótlandi í Danmörku fyrir að hafa numið 9 ára stúlku á brott og að hafa haldið henni fanginni í töluverðan tíma. Á þessum tíma nauðgaði hann henni. Maðurinn liggur einnig undir grun í máli Emilie Meng sem hvarf aðfaranótt 10. júlí 2016 í Korsør á Sjálandi. Lík hennar fannst á aðfangadag sama ár.

Maðurinn var handtekinn í lok júní á síðasta ári en þá fékk lögreglan fyrstu upplýsingarnar um brotin gegn litlu stúlkunni. Í kjölfar þeirra upplýsinga ræddi lögreglan við stúlkuna og foreldra hennar og komst þá skriður á málið.

Hinn ákærði er 35 ára flutningabílstjóri frá litlum bæ nærri Struer. Hann var handtekinn í ágúst 2016 vegna rannsóknar á hvarfi Emilie Meng en var síðan sleppt úr haldi þar sem lögreglan taldi sig ekki hafa nægileg gögn til að tengja hann við hvarf hennar og það sem síðar reyndist vera morð. Hann liggur þó enn undir grun í því máli.

Saksóknari mun væntanlega krefjast þess að maðurinn verði dæmdur til ótímabundinnar vistunnar í fangelsi eða réttargeðdeild en það er þyngsta mögulega refsing í Danmörku auk ævilangs fangelsis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Bankabækur Dana tútna út

Bankabækur Dana tútna út
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þrjár konur smitaðar af HIV eftir „Vampírumeðferð“

Þrjár konur smitaðar af HIV eftir „Vampírumeðferð“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tveggja ára barn lést í hoppukastaslysi

Tveggja ára barn lést í hoppukastaslysi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Reyndi að svindla á reglunum varðandi samakstur – Lögreglan sá við honum

Reyndi að svindla á reglunum varðandi samakstur – Lögreglan sá við honum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Amma á níræðisaldri sögð vera harðsvíraður okurlánari

Amma á níræðisaldri sögð vera harðsvíraður okurlánari
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Þetta eru þær tegundir starfa sem gervigreindin mun fyrst gera óþörf

Þetta eru þær tegundir starfa sem gervigreindin mun fyrst gera óþörf
Pressan
Fyrir 5 dögum

„Svo fékk ég símtal sem breytti öllu“

„Svo fékk ég símtal sem breytti öllu“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Játar að hafa skotið 14 mánaða hundinn sinn

Játar að hafa skotið 14 mánaða hundinn sinn