Hún hafði ætlað í útreiðartúr á hesti sínum í Washington í Bandaríkjunum en hún komst aldrei alla leið í hesthúsið. Á leiðinni þangað var ráðist á hana og hún skotin í höfuðið. Henni var einnig nauðgað og lík hennar skilið eftir í skógi. Þar fannst nær klæðalaust líkið.
Á líkinu fannst sæði en það kom ekki að neinu gagni við rannsókn málsins enda tæknin ekki komin jafn langt á veg og hún er núna. En á síðasta ári var málið tekið aftur til rannsóknar í þeirri von að ný tækni við rannsóknir á lífsýnum, DNA, gæti orðið til þess að það myndi upplýsast.
Lögreglan í Snohmosh sýslu skýrði frá þessu á fréttamannafundi fyrir helgi. Þar kom fram að sérfræðingar hefðu notað lífsýnið sem fannst á líkinu til að leita að svörunum í opnum ættfræðigagnagrunnum sem fólk sendir DNA til af fúsum og frjálsum vilja. Rannsóknin leiddi í ljós að DNA úr lífsýninu var úr manni úr hópi sex bræðra. Sjónir lögreglunnar beindust strax að einum bræðranna. Hann heitir Terrence Miller og er nú 77 ára. Hann hafði áður komist í kast við lögin og var því á skrá lögreglunnar.
En lögreglan varð að ganga 100% úr skugga um að hann væri maðurinn sem hefði myrt Jody. Á þeim tímapunkti var eingöngu ljóst að einn bræðranna hefði myrt Jody en hver þeirra var ekki vitað. Eina leiðin til þess var að útvega lífsýni úr Terrence til DNA-rannsóknar.
Í ágúst á síðasta ári eltu lögreglumenn Terrence í spilavíti og komust yfir kaffibolla sem hann henti í ruslið. Rannsókn á lífsýni, sem var á bollanum, leiddi í ljós að það passaði við sæðið sem fannst á líki Jody. Kaffibollinn varð því Terrence að falli.
Terrence var handtekinn í síðustu viku og verður ákærður fyrir morð. Lögreglan segir að hann hafi ekki þekkt Jody.