fbpx
Sunnudagur 05.maí 2024
Pressan

Fjórir menn handteknir vegna sprengjuárásar í Norður Írlandi – Ný IRA samtök grunuð

Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
Mánudaginn 21. janúar 2019 14:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjórir menn hafa verið handteknir af lögreglu um grun að vera ábyrgir fyrir sprengjuárás fyrir utan dómhús í Londonderry í Norður-Írlandi. Enginn lést þegar sprengjan sprakk, en umtalsverðar skemmdir urðu vegna hennar. Lögreglan grunar að árásin hafi verið skipulögð af nýjum IRA samtökum, en IRA framkvæmdi fjöldann af hryðjuverkaárásum um allt Bretland í rúma þrjá áratugi áður en friðarsamkomulag var undirritað árið 1998. Alls dóu um 3.600 manns í árásum IRA.

Sinn Fein, pólitískur armur IRA, brást harðlega við árásinni. Sagði Mary Lou McDonald, formaður Sinn Fein, að þeir sem væru ábyrgir fyrir árásinni ættu að skammast sín og ekki framkvæma frekari árásir. Lögregluyfirvöld í Norður-Írlandi sagði að þau hefði fengið viðvörun, eingöngu nokkrum mínútum áður en sprengjan sprakk, til að rýma svæðið. Þurftu um 150 manns að yfirgefa heimili sín ásamt miklum fjölda barna sem voru á barnaskemmtun.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Tveggja ára barn lést í hoppukastaslysi

Tveggja ára barn lést í hoppukastaslysi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Reyndi að svindla á reglunum varðandi samakstur – Lögreglan sá við honum

Reyndi að svindla á reglunum varðandi samakstur – Lögreglan sá við honum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Amma á níræðisaldri sögð vera harðsvíraður okurlánari

Amma á níræðisaldri sögð vera harðsvíraður okurlánari
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Þetta eru þær tegundir starfa sem gervigreindin mun fyrst gera óþörf

Þetta eru þær tegundir starfa sem gervigreindin mun fyrst gera óþörf
Pressan
Fyrir 5 dögum

„Svo fékk ég símtal sem breytti öllu“

„Svo fékk ég símtal sem breytti öllu“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Játar að hafa skotið 14 mánaða hundinn sinn

Játar að hafa skotið 14 mánaða hundinn sinn