Martin Schain var vitni að skotárásinni í Drottninggatan. Hann er nýfluttur til Malmö ásamt fjölskyldu sinni frá New York.
„Ég fann aldrei til óöryggis þar. Það er verra hér í Malmö. Við göngum jú með barnavagninn þar sem þetta gerðist.“
Sagði hann í samtali við Sydsvenskan.
Schain og fjölskylda hans búa beint á móti internetkaffihúsinu þar sem mennirnir voru skotnir. Þrír létust og þrír særðust.
Schain var að þvo upp þegar hann heyrði skothvellina.
„Ég hélt fyrst að þetta hefði verið stillans sem hefði hrunið. Maður trúir ekki að verið sé að nota sjálfvirk vopn.“