Veiðin er hafin í Eyjafjarðará og veiðimenn eru byrjaðir að fá fiska. Við náðum tali af Ólafi Sigurðssyni sem var við veiðar í ánni fyrir fáum dögum. Hann veiddi flottan fisk sem sannarlega góð byrjun á veiðitímabilinu.
,,Ég fékk fiskinn á svæði eitt í Eyjafjarðará og ætli ég hafi ekki verið með fiskinn á í einar 15 mínútur, þetta var mjög gaman,“ sagði Ólafur Sigurðsson á Akureyri og hann hélt áfram.
,,Fiskurinn rauk langt út og var með með mikil sporðaköst. Ég hnýtti sjálfur fluguna sem hann tók en ég hef verið duglegur að hnýta í vetur. Veiðin er svo skemmtileg og gefur manni mikið,“ sagði Ólafur ennfremur.
Mynd Ólafur Sigurðsson með fiskinn úr Eyjafjarðará sem hann veiddi á dögunum.