Munnskol og tannkrem markaðssett fyrir börn en innihalda ekki ráðlagt magn af flúor til að vernda tennur þeirra
Munnskol og tannkrem sem sérstaklega er markaðssett fyrir börn eru oft langt frá því að standast þau viðmið sem Landlæknisembættið gerir til flúormagns í slíkum vörum. Dæmi eru um að tannlæknar hafi varað foreldra við að nota munnskol eftir tannburstun þar sem flúormagnið í barnamunnskolinu sé of lítið og með því sé í raun verið að skola burt flúorið frá tannkreminu og auka þannig í raun hættuna á tannskemmdum.
Notkun flúors er best þekkta vörnin gegn tannskemmdum en flúor herðir glerunginn og getur unnið gegn tannskemmd á byrjunarstigi. Mælt er með að tennurnar séu burstaðar tvisvar á dag með flúortannkremi að flúorstyrkleika á bilinu 1000–1500 ppm F. (e. parts per million eða einn milljónasti) Það viðheldur lágmarksflúorstyrk í munnholi og er því afar áhrifamikill þáttur í daglegri vörn gegn tannskemmdum, samkvæmt ráðleggingum yfirtannlæknis Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu til foreldra á vef stofnunarinnar. Ráðlagt magn tannkrems og styrkur flúors í tannkremi (ppm F) fer eftir aldri barns og sjá má í meðfylgjandi töflu.
Tannkrem:
Yngri en 3 ára: 1/4 af nögl litlafingurs (1000–1350 ppm F)
3–5 ára: Nögl af litlafingri (1000–1350 ppm F)
6 ára og eldri: 1 sentimetri af flúortannkremi (1350–1500 ppm F)
Munnskol:
6–9 ára: 5 ml. af 0,2% NaF munnskoli, einu sinni í viku.
10–16 ára: 10 ml af 0,2% NaF munnskoli, einu sinni í viku.
„Þar sem tannskemmdir hjá íslenskum börnum og unglingum eru algengar er einnig mælt með reglulegri flúorskolun tanna með 0,2% NaF munnskoli frá 6 ára aldri,“ segir enn fremur um munnskol.
Eins og sjá má á töflunni er ráðlagt magn fyrir börn sex ára og eldri í hvert skipti einn sentimetri af flúortannkremi með flúorstyrk 1350-1500 ppm F.
Blaðamaður DV gerði sér ferð í Hagkaup til að finna tannhirðuvörur sem augljóslega er beint sérstaklega að börnum. Blaðamaður keypti tvær tegundir af barnatannkremi og tvær flöskur af barnamunnskoli – Hello Kitty og Star Wars frá framleiðandanum SmileGuard – auk einnar flösku af hinu þekkta Colgate-Multi Protection munnskoli, sem margir fullorðnir kannast við og nota.
Flestar þessar vörur áttu það sameiginlegt, fyrir utan að vera skrautlegar og skreyttar teiknimyndafígúrum sem höfða til barna, að vera nokkuð frá þeim viðmiðum um flúorstyrk sem Landlæknisembættið mælir með fyrir börn. Þó ber að taka fram að margar aðrar vörur voru einnig í boði, jafnvel frá sömu framleiðendum, sem uppfylltu þessar kröfur.
Uppgefinn styrkur flúors í Hello Kitty- og Star Wars-munnskolinu reyndist 0,05% (eða 225 ppm F). Athugið að styrkleikinn sem Landlæknisembættið mælir með er 0,2%, eða fjórðungi meira en finna má í þessum flöskum. Nákvæmlega sama lága gildi var að finna í Colgate-munnskolinu og í barnamunnskolinu. Einn tannlæknir sem DV bar flöskurnar undir rak sömuleiðis augun í að í innihaldsefnum þess barnamunnskols sem um ræðir væri að finna sítrónusýru, sem hann vissi ekki betur en að hefði skaðleg áhrif á tennur.
Þegar kom að barnatannkreminu var ástandið litlu skárra. Þar hafði orðið fyrir valinu Hello Kitty-tannkrem frá framleiðandanum Firefly og barnatannkrem frá hinum þekkta framleiðanda Crest. Síðarnefnda tannkremið var langt frá því að standast kröfur. Crest-tannkremið er með flúorstyrk upp á aðeins 500 ppm F.
Í áðurnefndri grein yfirtannlæknis Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir orðrétt: „Barnatannkrem með minni flúorstyrk en 1.000 ppm F, ætti aldrei að nota.“
Hello Kitty-tannkremið státar af flúormagni 1.000 ppm F, sem rétt nær lágmarkinu sem ætlast er til fyrir börn 3 ára og yngri og barna 3–5 ára. Hins vegar er ljóst að tannkremið sem skartar þessari vinsælu teiknimyndafígúru ætti ekki að notast af börnum 6 ára og eldri.
Athugun DV sýnir mikilvægi þess að foreldrar séu meðvitaðir um þær lágmarkskröfur sem gerðar eru til flúortannkrems og munnskols og vandi valið þegar í verslanir er komið. Mikilvægt er að lesa innihaldslýsingar á umbúðum og vera upplýst um þau viðmið sem sérfræðingar á þessu sviði setja.