Frábær kjúklingaréttur í kvöldmatinn! Þessi máltíð er borin fram með hunangs BBQ sósu, en hún fullkomnar máltíðina!
Hráefni
- 900 g Kjúklingabringur, skornar í munnbita
- 125 g Hveiti
- 140 g Kornflex, gróflega mulið
- 2 Egg
- 60 ml Mjólk
- 330 ml Hunangs BBQ sósa
- 0.5 tsk Salt
- 0.5 tsk Pipar
- 0.5 tsk Hvítlauksduft
- 0.25 tsk Paprikukrydd
Leiðbeiningar
- Setjið kjúklinginn í skál ásamt hveiti og blandið vel saman.
- Í aðra skál setjið þið Kornflex, salt og pipar, hvítlauksduft og paprikudrykk. Geymið.
- Látið egg og mjólk í aðra skál og þeytið saman.
- Dýfið kjúklingabitunum í eggjablönduna og látið renna af þeim og veltið þá upp úr Kornflexi.
- Setjið á bökunarplötu með smjörpappír. Setjið í 200°c heitan ofn og bakið í 15-20 mínútur.
- Þegar kjúklingurinn er fulleldaður takið úr ofni og setjið í skál. Hitið bbq sósuna og hellið yfir bitana. Magn að eigin smekk.
- Það er líka hægt að sleppa þessu stigi og hella sósunni í skál og bera hana fram með kjúklingnum.
Þú getur keypt allt sem þarf í þessa uppskrift og annað fyrir vikuna á Heimkaup, og fengið vörurnar sendar heim eða í vinnuna, einfalt og þægilegt.