fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Matur

Sigríður fékk áfall þegar hún sá hvað leynist í kranavatni: „Þetta er bara svo hræðilegt“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Þriðjudaginn 4. desember 2018 22:30

Sigríður í áfalli á rannsóknarstofu Matís.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fréttakonan Sigríður Halldórsdóttir var með fréttaskýringu um plast í þættinum Kveik í kvöld á RÚV. Meðal þess sem Sigríður kafaði ofan í var magn örplasts í vatni. Sigríður fór með vatn úr þvottavél á rannsóknarstofu Matís þar sem það var síað. Svanhildur Hauksdóttir, starfsmaður Matís, leit svo eftir plastögnum í þvottavatninu.

Kom í ljós að mikið var af plastögnum í þvottavatninu en Sigríður fékk Svanhildi einnig til að rannsaka kranavatn af reykvísku heimili. Í því sýni voru að meðaltali 27 örplastsagnir í hverjum lítra drykkjarvatns, en rannsóknir Veitna fyrr á árinu sýndu fram á að ekki væru nema 0,2 til 0,4 agnir í hverjum lítra kranavatns. Sá varnagli var þó sleginn í Kveik að þátturinn hefði einungis látið kanna eitt sýni af einu heimili.

Þessar niðurstöður komu Sigríði þó í opna skjöldu.

„Þetta er bara svo hræðilegt,“ segir hún í þættinum.

Óljóst hvaðan plastið kemur

En hvaðan kemur þetta plast í kranavatninu?

„Við vitum í rauninni ekki nákvæmlega hvaðan þetta plast í kranavatninu er að koma. Hvort það sé að koma úr leiðslunni eða blöndunartækjunum eða hvort þetta sé raunverulega að koma úr uppsprettunni. Við bara vitum það ekki,“ segir Hrönn Jörundsdóttir, umhverfisefnafræðingur hjá Matís, í viðtali við Kveik og bætir við að hún telji það erfitt að finna drykkjarvatn án plastagna.

„En það náttúrulega, spurningin er kannski ekki endilega hvort við erum að finna það heldur kannski hversu mikið við erum að finna og þá næsta spurning er þá hvort þetta sé að hafa einhver áhrif á okkur,“ segir hún.

Þá er óljóst hvaða áhrif þessar plastagnir hafa.

„Við bara vitum það ekki. Af því að oft geta áhrifin verið svolítið dulin. Við gerum okkur ekki grein fyrir því hvað er að valda ákveðnum áhrifum,“ segir Hrönn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa