Þessar litlu kúlur geta glatt mann svo mikið en þær eru lágkolvetna vænar og algjört dúndur.
Hráefni:
170 g mjúkur rjómaostur
60 kókosolía eða mjúkt smjör
½ bolli möndlumjöl
30 g sætuefni í duftformi + 1 tsk. til að blanda saman við kókosmjöl
2 tsk. nýkreistur sítrónusafi
börkur af ½ sítrónu
1 tsk. vanilludropar
1 bolli kókosmjöl
Aðferð:
Blandið öllum hráefnum saman nema kókosmjöli og 1 teskeið af sætuefni þar til blandan er orðin þykk. Kælið í frysti í 10 mínútur. Blandið kókosmjöli og sætuefni saman á disk. Takið blönduna úr frysti og búið til litlar kúlur úr henni. Rúllið þeim upp úr kókosmjölinu og frystið í 10 til 30 mínútur. Njótið strax.