Kári Már Óskarsson er lærður einkaþjálfari og byrjaði árið 2016 að hanna íþróttaföt á hagstæðu verði undir merkinu Kyon Apparel. „Í dag hefur línan færst meira yfir í götufatnað, en það var alltaf ætlunin að byrja í íþróttafatnaði og færa sig svo yfir í götutískuna. Íþróttafötin verða áfram til staðar enda seljast þau grimmt vegna gæðanna og núna erum við með flott úrval af glæsilegum götufatnaði,“ segir Kári.
Kyon alls staðar
Kári hefur hannað fatnað frá því árið 2016. „Ég hef alltaf haft áhuga á fötum og er mjög smámunasamur þegar kemur að fatnaði. Þess vegna finnst mér gott að hanna mín eigin föt,“ segir Kári. Einnig hefur Kári verið að vinna með þekktum tónlistarmönnum á Íslandi við að hanna fatnað fyrir þá. „Við erum að vinna sérstaka línu fyrir þessa einstaklinga og kallast hún KYON X,“ segir Kári leyndardómsfullur.
Vel tekið á Íslandi og erlendis
Fatnaðurinn frá Kyon Apparel fæst hér heima í hönnunarversluninni Jöklu á Laugavegi 90. Verslunin sérhæfir sig í sölu á íslenskri hönnun og er fatnaðurinn frá Kyon Apparel sérlega vinsæll. Einnig er hægt að fá vörurnar keyptar á vefverslun Kyon Apparel, kyonapparel.is. Vörunum hefur svo verið vel tekið erlendis og fást meðal annars í Bandaríkjunum, Bretlandi og Rússlandi.
Með því að nota afsláttarkóðann DV25 inn á heimasíðu Kyon Apparel fá lesendur DV 25% afslátt af vörum út nóvember.
Nánari upplýsingar má nálgast á kyonapparel.is, Kyonapparel á Instagram, Facebook-síðunni Kyon Apparel og Facebook-síðunni jokla.iceland.
Jökla, Laugavegi 90, 101 Reykjavík