fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024

Býð góð ráð

Ritstjórn DV
Föstudaginn 5. ágúst 2016 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég heiti Snjólfur Gíslason og því miður þarf ég að þiggja laun frá Tryggingastofnun ríkisins eða að hluta frá Lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna og Lífeyrissjóðnum Gildi. Samtals gerir þetta um 200 þúsund á mánuði.

Af ekki stærri upphæð er ég búinn að greiða í skatta um 250.000 krónur frá áramótum. Og því miður er sjálfsagt fjöldi annarra í sömu stöðu og ég – eða verri.

Nú er staðan sú að enginn okkar getur farið í verkfall.
Ekki er hægt að ná sambandi við háttvirtan velferðarráðherra né nokkurn annan ráðamann á þingi. Þeir liggja trúlega í sólbaði úti í heimi og eru sennilega mjög ánægðir með okkar kjör.

En sem betur fer get ég gefið því fólki, sem er að berjast við það sama og ég, nokkur góð ráð til sparnaðar.

Hættið að nota heitavatnskútinn, sápu að sjálfsögðu og látið ykkur ekki detta í hug að nota sjálfvirka þvottavél. Ekki nota rafmagnseldavél því það er hægt að nota mó ef heilsan leyfir.

Hættið að kaupa klósettpappír því ef ekki er frost er alltaf hægt að finna mosa. Látið ykkur ekki detta í hug að nota bíl heldur verðið ykkur úti um gamla hesta því maður getur étið þá þegar þeir geta ekki sinnt störfum sínum lengur. Komið ykkur upp súrtunnu því þar geymist maturinn án þess að skemmast. Hægt er að nota selshreifa og margt fleira. Meðfram þjóðvegunum liggur fullt af dauðum eða hálfdauðum lömbum sem hægt er að nota til matar. Blessuð sé vegagerðin fyrir að salta vegina.

Ég er alltaf tilbúinn, meðan ég get borgað af símanum, að veita fólki í minni stöðu góð ráð, sem sennilega skipta hundruðum eða þúsundum.

Ráð til stjórnmálamanna um kosningaloforð fyrir næstu kosningar er að gera allt sem þeir geta til að losna við öll þessi gagnslausu gamalmenni svo þau krókni ekki eða drepist úr kulda.

Húsið mitt er að drabbast niður að utan sem innan, þetta verður maður að sætta sig við.

Til stjórnmálamanna og bankastofnana: Þið verðið að passa ykkur að halda áfram að vera bara með tóm okurlán svo fólk sem er á besta aldri geti alls ekki keypt sér né byggt sér hús fyrir framtíðina. Það gæti komið sér illa fyrir alla „Jóakima“ sem leigja út húsin sín á okurverði –sem sé mjólka alla fátæklinga eins og hægt er.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sjö stjórar til skoðunar hjá United – Efast um nokkra sem eru á blaði

Sjö stjórar til skoðunar hjá United – Efast um nokkra sem eru á blaði
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Samtal Liverpool við Slot virkt

Samtal Liverpool við Slot virkt
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Villa staðfestir gleðitíðindin

Villa staðfestir gleðitíðindin
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Sjáðu athyglisvert myndband sem Óli Kalli birti – „Bara ef ég fæ að vera með Gylfa“

Sjáðu athyglisvert myndband sem Óli Kalli birti – „Bara ef ég fæ að vera með Gylfa“