fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024

Ítrekuð ofbeldisverk í tengslum við grísakótilettur: Flugskallaði móður sína og ætlaði að berja alla

Terry Ball er ástríðufullur áhugamaður um grísakótilettur

Björn Þorfinnsson
Laugardaginn 20. maí 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan í borginni Athens í Georgíu-fylki handtók á dögunum mann eftir að símtal barst þar sem hann var sakaður um að reyna að „slást við alla í húsinu“. Þetta var í annað sinn á skömmum tíma sem að lögreglan þurfti að hafa afskipti af hinum 29 ára gamla Terry Ball. Í febrúar á þessu ári var hann handtekinn fyrir að flugskalla móður sína og henda í hana kótilettu.

Málið var í ferli innan bandaríska réttarkerfisins þegar símtalið barst um aðra uppákomu í tengslum við Ball. Það var fyrrnefnd móðir ofbeldis mannsins sem hringdi og tjáði lögreglu að Ball ætlaði að berja alla í húsinu. Ástæðan var sú að ótilgreindur fjölskyldumeðlimur hafði étið kótilettu sem Ball ætlaði að gæða sér á. Í staðinn fyrir kótilettuna voru aðeins núðlur í boði og því sturlaðist kótilettu-unandinn.

Allt var á rú og stúi í húsinu þegar lögreglu bar að garði og var Ball handtekinn á vettvangi. Í frétt FOX 29 kemur fram að hann hafi ítrekað tjáð lögreglu að hann væri afar ósáttur við afdrif kótilettunnar.

Atvikið í febrúar var sambærilegt. Ball var þá í miðjum klíðum að gæða sér á kótilettu í kvöldmat þegar hann varð sundurorða við móður sína. Hann henti þá í hana kótilettunni og stóð síðan upp og lamdi hana og skallaði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Sjáðu þegar Jóhann Berg var kvaddur í dag – Búinn að spila sinn síðasta leik

Sjáðu þegar Jóhann Berg var kvaddur í dag – Búinn að spila sinn síðasta leik
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Sjáðu þegar Klopp söng nafn Slot fyrir framan stuðningsmenn á Anfield

Sjáðu þegar Klopp söng nafn Slot fyrir framan stuðningsmenn á Anfield
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

Af hverju þið eigið að finna neistann ykkar

Af hverju þið eigið að finna neistann ykkar
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Yfirgefur Chelsea og sendir skilaboð á unga leikmenn liðsins – ,,Þeir þurfa að gera meira“

Yfirgefur Chelsea og sendir skilaboð á unga leikmenn liðsins – ,,Þeir þurfa að gera meira“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Auddi talar vel um Gregg Ryder og vonast til að hann rétti skútuna af

Auddi talar vel um Gregg Ryder og vonast til að hann rétti skútuna af
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Byrjunarliðin í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar – Hver verður meistari?

Byrjunarliðin í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar – Hver verður meistari?
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Mjög óvænt nafn orðað við stjórastarfið hjá Chelsea

Mjög óvænt nafn orðað við stjórastarfið hjá Chelsea
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Segir stjörnu United að koma sér burt í sumar – ,,Væri gott skref fyrir hann“

Segir stjörnu United að koma sér burt í sumar – ,,Væri gott skref fyrir hann“