Íbúar í fjórum fylkjum Bandaríkjanna eru orðnir eru uggandi yfir fjölda óútskýrða dauðsfalla í fylkjunum á skömmum tíma og óttast að raðmorðingi sé kominn kreik. Í byrjun júní fannst lík hinnar 21 árs gömlu Adrönu Suazo í skóglendi nærri borginni Milton, sem er suður af Boston. Um er að ræða þrettánda líkið sem finnst í fylkjunum Massachusetts, Connecticut, Rhode Island og Main á nokkrum mánuðum. Öll eru málin óútskýrð og enn í rannsókn.
Hin dularfulla hrina dauðsfalla hófst þann 6. mars síðastliðinn þegar lík hinnar 35 ára gömlu Paige Fannon fannst ofan í Norwalk-á í Connecticut. Svo ólíklega vildi til að sama dag hafði hauskúpa af manni fundist nærri bænum Plymouth í Massachusetts-fylki. Tæpum tveimur vikum síðar fannst lík hinnar 58 ára gömlu Suzanne Wormser í Groton í Connecticut. Lík hennar hafði verið brytjað niður og komið fyrir í skjalatösku. Herbergisfélagi hennar var handtekinn á vettvangi en dó síðar í gæsluvarðhaldi en óvíst er um aðild hans að málinu.
Síðustu mánuði hefur síðan verið tilkynnt um líkfundi á nokkurra vikna fresti í áðurnefndu fylkjunum fjórum og eru íbúar fylkjanna farnir að vera uggandi samkvæmt umfjöllun New York Post. Fjöldi þessara óútskýrðu dauðsfalla þykir vera óvenjulegur en lögregluyfirvöld vilja þó ekki slá neinu föstu varðandi hvort að málin tengist. Eins og er þykir það ólíklegt í ljósi þess engin tengsl, bein eða óbein, virðist vera milli hinna látnu og ekkert hafi fundist á vettvangi líkfundanna sem tengir málin saman. Fórnarlömbin eru þá á öllum aldri og þá virðast dánarorsakirnar vera fjölbreyttar, sem væri frekar óvenjulegt ef raðmorðingi væri á kreiki.
Er skemmst að minnast málsins gegn, Rex Heuermann – raðmorðingjans með Íslandstenginguna – en hann herjaði aðallega á ungar vændiskonur og losaði sig við líkin með svipuðum hætti og á sömu slóðum eftir að illvirkinu var lokið.
Hin 21 árs gamla Suazo sást síðast lifandi þann 29. maí en fannst síðan látin af vegfaranda sunnudaginn 1. júní kl. 11:45 að staðartíma. Ekki fundust augljós sár eða áverkar á líkama hennar og lögregla bíður skýrslu réttarlæknis um dánarorsök .
Foreldrar hennar hafa stigið fram og harmað dauða hennar og krafið yfirvöld um svör. Enn sem komið er verjast yfirvöld þó frétt og segja málið í rannsókn. Eru íbúar hvattir til þess að anda rólega og leyfa rannsókn málanna að klárast.