fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fréttir

Eiginkona og dóttir heilabilaðs manns tókust á um arfinn fyrir Hæstarétti

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 9. apríl 2026 11:30

Hæstiréttur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hæstiréttur hefur hafnað kröfu konu um að dánarbú föður hennar verði tekið til opinberra skipta og eiginkonu hans ekki leyft að sitja í óskiptu búinu. Byggði dóttirin kröfuna einkum á því að vegna heilabilunar hafi faðir hennar ekki verið hæfur til þess að undirrita erfðaskrá sem veitti eiginkonunni slíkt leyfi.

Héraðsdómur og Landsréttur höfðu úrskurðað eiginkonunni í vil en þess ber að geta að hún var seinni eiginkona hins látna og ekki móðir dótturinnar.

Hæstiréttur samþykkti að taka málið fyrir þar sem það gæti haft fordæmisgildi.

Eiginkonan og hinn látni giftust árið 2006 og gerðu sameiginlega erfðaskrá árið 2022. Í skránni var kveðið á um heimild eiginkonunnar um að sitja í óskiptu búi að manninum látnum. Sama dag undirrituðu þau einnig kaupmála þar sem kveðið var á um að helmingshlutur eiginkonunnar í fasteign þeirra skyldi vera séreign hennar.

Í upphafi árs 2025 óskaði dóttirin eftir því að faðir hennar yrði sviptur fjárræði þar sem hann hefði verið árið 2020 greindur með illvíga heilabilun og heilsa hans hafi farið stigversnandi. Dóttirin lét þess getið að fasteign föður hennar og eiginkonu hans hefði nýlega verið auglýst til sölu og kauptilboð samþykkt. Dóttirin sagðist hins vegar ekki geta séð hvernig faðir hennar hefði í ljósi heilsu hans getað samþykkt slíkt tilboð.

Erfðaskrá

Maðurinn lést síðar á árinu 2025 og eiginkona hans óskaði í kjölfarið eftir leyfi til að sitja í óskiptu dánarbúinu, í samræmi við erfðaskránna. Sýslumaður veitti henni það leyfi en eftir það krafðist dóttirin opinberra skipta á búinu fyrir héraðsdómi sem varð ekki við því og heldur ekki Landsréttur.

Dóttirin taldi að faðir hennar hafi ekki verið fær um að undirrita erfðaskrá og kaupmála 2022. Taldi hún að sýslumaður hefði svipt hana réttinum til að vefengja erfðaskrána með því að veita henni ekki tækifæri til þess,

Eiginkonan mótmælti þeirri fullyrðingu að eiginmaður hennar hefði ekki verið hæfur til að undirrita erfðaskrána. Hún vísaði jafnframt til ákvæða erfðalaga um rétt langlífari maka til að sitja í óksiptu búi. Ekkert óvenjulegt eða óeðlilegt hafi verið við meðferð sýslumanns eða útgáfu leyfisins. Mótmælti hún því að sýslumanni hafi borið að tilkynna dótturinni um beiðni hennar um að sitja í óskiptu búi áður en leyfið var veitt eða veita henni frest til að vefengja erfðaskrána. Vildi eiginkonan einnig meina að skilyrði laga fyrir því að dóttirin gæti krafist opinberra skipta á búinu væru ekki uppfyllt.

Ósannað

Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að í málinu liggi hvorki fyrir matsgerð dómkvadds manns né önnur viðhlítandi sönnun fyrir því að manninn hafi brostið hæfi til þess að gera umrædda erfðaskrá. Slíks sönnunargagns hafi dótturinni verið þó í lófa lagið að afla samkvæmt þeim reglum sem gildi um meðferð ágreiningsmáls vegna kröfu um opinber skipti. Því verði krafa dótturinnar ekki tekin til greina á þeim grunni að fram sé komin sönnun um að erfðaskráin hafi verið efnislega ógild og skilyrði brostið til að ljúka skiptum með því að veita eiginkonunni leyfi til setu í óskiptu búi.

Rétturinn tekur að lokum fram að dóttirin eigi þess kost að leggja fram nýja kröfu um opinber skipti. Komi fram mótmæli við slíkri kröfu geti hún undir meðferð ágreiningsmáls óskað eftir dómkvaðningu manns til að meta atriði er varði hæfi föður hennar til að gera erfðaskrána. Undir meðferð slíks máls geti hún eftir atvikum einnig krafist þess að héraðsdómari kveði á um að réttaráhrif leyfis til setu í óskiptu búi falli niður að einhverju eða öllu leyti undir meðferð ágreiningsmálsins.

Í þetta sinn staðfesti Hæstiréttur úrskurð Landsréttar, sem hafði áður staðfest niðurstöðu héraðsdóms, um að ekki hafi verið sýnt fram á að dóttirin hefði heimild samkvæmt lögum til að krefjast opinberra skipta á dánarbúi föður hennar. Hún er því komin á endastöð í dómskerfinu með kröfu sína.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Meinaður aðgangur að minnisblöðum Bjarna og Þorgerðar Katrínar

Meinaður aðgangur að minnisblöðum Bjarna og Þorgerðar Katrínar
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Dagur reifar ömurlegar afleiðingar Brexit – „Þær eldast illa yfirlýsingar íslenskra ráðamanna“

Dagur reifar ömurlegar afleiðingar Brexit – „Þær eldast illa yfirlýsingar íslenskra ráðamanna“
Fréttir
Í gær

Einar segir menntun Helgu Völu vera fjárfestingu en ekki gjöf – Gagnrýnir Konráð hagfræðing harðlega

Einar segir menntun Helgu Völu vera fjárfestingu en ekki gjöf – Gagnrýnir Konráð hagfræðing harðlega
Fréttir
Í gær

Vopnahléið hangir á bláþræði og heimurinn heldur niðri í sér andanum

Vopnahléið hangir á bláþræði og heimurinn heldur niðri í sér andanum
Fréttir
Í gær

Sandra ekki sátt: „Við eigum að velja uppbyggingu fram yfir niðurskurð“

Sandra ekki sátt: „Við eigum að velja uppbyggingu fram yfir niðurskurð“
Fréttir
Í gær

Flestum finnst stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum – Píratar eru óánægðari en Miðflokksmenn

Flestum finnst stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum – Píratar eru óánægðari en Miðflokksmenn