fbpx
Mánudagur 13.apríl 2026
Fréttir

Sandra ekki sátt: „Við eigum að velja uppbyggingu fram yfir niðurskurð“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 9. apríl 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Á frístundaheimilum er unnið ómetanlegt starf af öflugu og metnaðarfullu fólki. Verkefni stjórnmálanna er að styrkja þá umgjörð, ekki veikja hana.“

Þetta segir Sandra Hlín Guðmundsdóttir, sem skipar 6. sætið á lista Viðreisnar í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, í aðsendri grein á vef Vísis. Þar gerir hún ákvörðun meirihluta skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar að umtalsefni, en ráðið samþykkti á dögunum að stytta opnunartíma frístundaheimila.

Verði tillagan samþykkt í borgarráði verða frístundaheimili borgarinnar opin til klukkan 16:30 frá og með næsta hausti í stað 17 eins og verið hefur.

Skref í ranga átt

Að mati Söndru er þetta skref í ranga átt og telur hún að styttingin muni ekki leysa mönnunarvanda, heldur þvert á móti gera hann verri.

„Nú þegar glímir starfsemin við skort á starfsfólki, sérstaklega á haustin. Ef starfshlutfall er minnkað og störfin gerð enn óstöðugri en þau eru í dag, verður Reykjavík enn síður samkeppnishæf um hæft fólk,“ segir hún.

Sandra bendir á að starfsöryggi og fyrirsjáanleiki skipti sköpum.

„Ef störf á frístundaheimilum verða ótryggari verður erfiðara að laða að og halda í fólk sem vill byggja upp starfsferil í frítímastarfi. Við eigum ekki að sætta okkur við að jafn mikilvæg þjónusta standi stöðugt frammi fyrir manneklu.“

„Þar liggur lausnin“

Sandra vísar í fundargerð skóla- og frístundasviðs borgarinnar þar sem fram kemur að ánægðustu starfsmenn borgarinnar vinna í frístundastarfi.

„Að mati okkar í Viðreisn eiga frístundastarfsmenn skilið uppbyggingu í stað niðurskurðar. Þar liggur lausnin. Við viljum bæta starfsaðstæður á frístundaheimilum, skapa fleiri heilsdagsstörf allt árið og setja starfsþróun í forgang.“

Sandra telur að þessum markmiðum megi ná með því að fjölga plássum í sumarfrístund og koma á meiri samvinnu milli skóla og frístundar varðandi heilsdagsstörf.

„Frístundaheimili eru ein af grunnstoðum velferðar barna og fjölskyldna í Reykjavík. Þar fer fram mikilvægt starf sem styður við félagsþroska, sköpun og sjálfstæði barna utan hefðbundins skólatíma. Þess vegna skiptir miklu máli að umgjörð þeirra sé sterk, stöðug og metin að verðleikum.“

Hún segir að lokum að horfa verði á dag barnsins í heild og samfella í degi barna eigi að vera forgangsmál.

„Börn eiga að geta sinnt skóla, frístundum, íþróttum og tómstundum í eðlilegu flæði. Það krefst raunverulegrar samvinnu milli skóla, frístundaheimila og íþrótta- og tómstundastarfs. Slík nálgun einfaldar líf barna og foreldra og skapar meiri stöðugleika fyrir starfsfólk. Við eigum að velja uppbyggingu fram yfir niðurskurð – það er sú breyting sem Reykjavík þarf.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Myndband: Ari Edwald hneykslaður – „Bara skemmdarverk“

Myndband: Ari Edwald hneykslaður – „Bara skemmdarverk“
Fréttir
Í gær

Maður féll í Ölfusá

Maður féll í Ölfusá
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Maðurinn sem stakk Irynu Zarutska til bana ósakhæfur – Saksóknarar vilja dauðarefsingu

Maðurinn sem stakk Irynu Zarutska til bana ósakhæfur – Saksóknarar vilja dauðarefsingu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

DIMMA birtir yfirlýsingu: Gagnrýna Stebba harðlega – „Ærumeiðandi óhróður“

DIMMA birtir yfirlýsingu: Gagnrýna Stebba harðlega – „Ærumeiðandi óhróður“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir í lottóinu – „Guð minn góður, þetta breytir öllu lífinu“

Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir í lottóinu – „Guð minn góður, þetta breytir öllu lífinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útgerðarfyrirtæki mátti draga ferðir á vígsluathafnir skipa frá skatti en ekki kaup á æfingahjóli fyrir áhöfn

Útgerðarfyrirtæki mátti draga ferðir á vígsluathafnir skipa frá skatti en ekki kaup á æfingahjóli fyrir áhöfn