fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fréttir

Morgunblaðið biðst afsökunar á dánartilkynningarklúðrinu og ætlar að endurskoða verkferla

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 10. apríl 2026 09:33

Morgunblaðið biðst afsökunar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Morgunblaðið biður Sölva Guðmundsson, sem var ranglega tilkynntur látinn í blaðinu, og aðstandendur hans afsökunar. Leitað verði leiða til þess að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig.

Eins og greint var frá í morgun birtist dánartilkynning Sölva í blaðinu í morgun. Sölvi, sem býr á Breiðdalsvík, er hins vegar alls ekki látinn. Heldur var um falska tilkynningu að ræða frá konu sem sé þekktur eltihrellir.

„Morgunblaðið ræddi við Sölva í morgun og bað hann afsökunar á birtingu þessarar röngu auglýsingar. Morgunblaðið og mbl.is biðja aðstandendur og vini Sölva, sem og lesendur sína alla, sömuleiðis afsökunar,“ segir í frétt á mbl.is.

Sjá einnig:

Sakar mæðgur um að hafa birt dánartilkynningu um sig í Morgunblaðinu

Segir að tilkynningin hafi borist Morgunblaðinu með venjulegum hætti. Ekkert hafi gefið til kynna að um ósannindi hafi verið að ræða.

„Slíkar blekkingar eru sem betur fer afar fátíðar en Morgunblaðið mun leita allra leiða til að finna út úr því hvernig þetta gerðist til að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig. Þá verður leitað til viðeigandi yfirvalda um framhald málsins,“ segir í frétt mbl.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Bæjarstjóraskipti framundan á Akureyri – „Takk fyrir mig“

Bæjarstjóraskipti framundan á Akureyri – „Takk fyrir mig“
Fréttir
Í gær

Hefðu Hildur og félagar átt að fylgja fordæmi Davíðs?

Hefðu Hildur og félagar átt að fylgja fordæmi Davíðs?
Fréttir
Í gær

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“