fbpx
Mánudagur 13.apríl 2026
Fréttir

Flestum finnst stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum – Píratar eru óánægðari en Miðflokksmenn

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 9. apríl 2026 09:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maskína hefur birt niðurstöður könnunar um málefni útlendinga en þar kemur fram að mikill meirihluti landsmanna (66%) er hlynntur móttökuskólum fyrir börn af erlendum uppruna. Aðeins 14 prósent eru andvígir og 20 prósent í meðallagi hlynntir.

Eins voru svarendur spurðir hvort ríkisstjórnin hefði staðið sig vel eða illa í málefnum útlendinga á yfirstandandi kjörtímabili. Flestir sögðu illa, eða 44 prósent, 24 prósent telja ríkisstjórnina hafa staðið sig vel og 31 prósent segja í meðallagi. Rétt er að taka fram að Maskína kannaði ekki hvort svarendum þætti ríkisstjórnin ekki hafa gert nóg í málefnum útlendinga eða hvort þeim þyki ríkisstjórnin hafa gengið of langt. Af sundurliðun svara má ráða að þeir sem telja ríkisstjórnina hafa staðið sig illa geri það á ólíkum forsendum, en til að mynda er óánægjan meiri meðal stuðningsmanna Pírata heldur en meðal stuðningsmanna Miðflokksins. Sósíalistar eru óánægðastir með frammistöðu ríkisstjórnarinnar í útlendingamálum. Niðurstaðan sýnir því óánægju með aðgerðir ríkisstjórnarinnar en ekki á hverju óánægjan byggir, en ríkisstjórnin hefur bæði verið gagnrýnd fyrir að ganga of skammt sem og of langt.

Hvað móttökuskóla fyrir börn af erlendum uppruna varðar þá eru kjósendur Pírata, Sósíalistaflokksins og Vinstri grænna líklegastir til að vera á móti en kjósendur Flokks fólksins, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks líklegastir til að vera hlynntir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Myndband: Ari Edwald hneykslaður – „Bara skemmdarverk“

Myndband: Ari Edwald hneykslaður – „Bara skemmdarverk“
Fréttir
Í gær

Maður féll í Ölfusá

Maður féll í Ölfusá
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Maðurinn sem stakk Irynu Zarutska til bana ósakhæfur – Saksóknarar vilja dauðarefsingu

Maðurinn sem stakk Irynu Zarutska til bana ósakhæfur – Saksóknarar vilja dauðarefsingu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

DIMMA birtir yfirlýsingu: Gagnrýna Stebba harðlega – „Ærumeiðandi óhróður“

DIMMA birtir yfirlýsingu: Gagnrýna Stebba harðlega – „Ærumeiðandi óhróður“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir í lottóinu – „Guð minn góður, þetta breytir öllu lífinu“

Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir í lottóinu – „Guð minn góður, þetta breytir öllu lífinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útgerðarfyrirtæki mátti draga ferðir á vígsluathafnir skipa frá skatti en ekki kaup á æfingahjóli fyrir áhöfn

Útgerðarfyrirtæki mátti draga ferðir á vígsluathafnir skipa frá skatti en ekki kaup á æfingahjóli fyrir áhöfn