fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fréttir

Björgvin Halldórsson er látinn

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 9. apríl 2026 12:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björgvin Halldórsson, tónlistarmaður, er látinn 74 ára að aldri. Hann var bráðkvaddur á heimili sínu í Hafnarfirði í nótt.

Mbl.is greinir fyrst frá.

Björgvin var fæddur 16. apríl árið 1951. Þann 1. október skaust hann upp á stjörnuhimininn þegar hann var valinn poppstjarna ársins 1969. Síðan þá hefur hann verið einn þekktasti tónlistarmaður landsins.

Björgvin söng með fjölda hljómsveita á borð við Flowers, Ævintýri, Brimkló, Ðe lónlí blú bojs og HLH flokknum. Árið 1995 söng hann lagið Núna fyrir hönd Íslands í Eurovision söngvakeppninni.

Björgvin söng fjölmörg önnur lög sem eru samgróin þjóðarsálinni, svo sem Gullvagninn, Þó líði ár og öld og jólalagið Þú komst með jólin til mín. Þá hélt hann árlega jólatónleika undir yfirskriftinni Jólagestir Björgvins.

Börn Björgvins, Svala og Krummi, hafa einnig verið áberandi í tónlistarlífi landsins. Bæði sem sóló tónlistarfólk og í hljómsveitunum Scope og Mínus.

Björgvin Halldórsson var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 2011 fyrir framlag sitt til tónlistarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Bæjarstjóraskipti framundan á Akureyri – „Takk fyrir mig“

Bæjarstjóraskipti framundan á Akureyri – „Takk fyrir mig“
Fréttir
Í gær

Hefðu Hildur og félagar átt að fylgja fordæmi Davíðs?

Hefðu Hildur og félagar átt að fylgja fordæmi Davíðs?
Fréttir
Í gær

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“