fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fréttir

Eddie Hall vill berjast aftur við Hafþór Júlíus en ekki í hnefaleikum – „Ef það eru nægir peningar í spilinu“

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 9. apríl 2026 15:30

Margir myndu vilja sjá Eddie Hall og Hafþór Júlíus mætast á nýjan leik. Myndir/IMDB

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breski aflraunamaðurinn Eddie Hall skorar á Hafþór Júlíus Björnsson, eða Fjallið eins og hann er gjarnan kallaður, að mæta sér í bardaga. En ekki í hnefaleikum að þessu sinni.

Kraftajötnarnir tveir mættust í hnefaleikum í mars mánuði árið 2022. Bar Hafþór Júlíus þá sigur úr býtum. Um var að ræða sýningarbardaga í Dubai sem endaði óvænt á stigum eftir sex lotur.

Eddie Hall náði Hafþóri reyndar í gólfið snemma í þeirri rimmu en eftir að Hafþór komst aftur á fæturna var aldrei nein spurning hvernig það færi. Lengi hefur verið rætt um annan boxbardaga en ekkert orðið af því.

Nú segist Eddie Hall vilja mæta Hafþóri aftur í bardaga, en ekki í hnefaleikum heldur í blönduðum bardagalistum, það er MMA.

Sjá einnig:

Hafþór vann sigur gegn Eddie Hall

„Ef ég á að vera hreinskilinn myndi ég helst vilja berjast við Thor úti á götu en já ég vill berjast við hann í MMA,“ sagði Hall við miðilinn TalkSPORT. „Ef það eru nægir peningar í spilinu, þá skal ég berjast við hvern sem er.“

Hall hefur áður keppt í MMA, við pólska aflraunamanninn Mariusz Pudzianowski á síðasta ári og unnið. Hafþór Júlíus hefur hins vegar enga reynslu af greininni aðra en æfingar.

Ekki er talið sérstaklega líklegt að það verði af MMA rimmu milli þessara tveggja kraftajötna, sem báðir hafa hlotið titilinn sterkasti maður heims. En ef það eru nægir peningar í spilinu, eins og árið 2022, gæti það þó breyst.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Meinaður aðgangur að minnisblöðum Bjarna og Þorgerðar Katrínar

Meinaður aðgangur að minnisblöðum Bjarna og Þorgerðar Katrínar
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Dagur reifar ömurlegar afleiðingar Brexit – „Þær eldast illa yfirlýsingar íslenskra ráðamanna“

Dagur reifar ömurlegar afleiðingar Brexit – „Þær eldast illa yfirlýsingar íslenskra ráðamanna“
Fréttir
Í gær

Sandra ekki sátt: „Við eigum að velja uppbyggingu fram yfir niðurskurð“

Sandra ekki sátt: „Við eigum að velja uppbyggingu fram yfir niðurskurð“
Fréttir
Í gær

Flestum finnst stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum – Píratar eru óánægðari en Miðflokksmenn

Flestum finnst stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum – Píratar eru óánægðari en Miðflokksmenn